fjármagn til fíkniefnavarna.
Hæstv. forseti. Þessi mál verða aldrei of oft tekin til umræðu í hv. þingi og ber að fagna því að þau séu tekin upp af hvaða tilefni sem er til að ræða þau. Það getur ekki verið svo að neinn í þessum þingsal átti sig ekki á hversu mikil vá fylgir fíkniefnavandanum hér á landi og að hann hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Um það getum við ekki deilt.
Við getum heldur ekki deilt um það að auka þarf fjármagn til þessarar starfsemi ef við ætlum að takast á við þetta vandamál sem er því miður vaxandi í þjóðfélagi okkar. Við getum gert það, en þá verðum við líka að forgangsraða ýmsum verkefnum. Við verðum að styrkja starfsemi SÁÁ. Við þurfum að styrkja íþróttahreyfinguna. Við þurfum að styrkja skátastarfið. Við þurfum að styrkja ungmennafélögin. Við verðum að byrja mjög snemma á fræðslu í fíkniefnaforvörnum fyrir unglinga og efla vitund þeirra um hversu hættuleg vegferð fíkniefnin eru. Þetta held ég að við hljótum að geta verið sammála um. Þess vegna ber að fagna því ef þessi umræða er tekin hér upp af hvaða tilefni sem er. Hún verður aldrei of oft tekin upp.