fjáraukalög 2006.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn. Já, við ætlum að fara ofan í málefni þessara stofnana á milli umræðna. Þetta er hins vegar mjög viðamikið verkefni og óljóst hvað við komumst langt í þeirri vinnu.
Það er hárrétt sem hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson benti hér á, fastakostnaðurinn er mjög hár þannig að minni öldrunarstofnanir glíma við mjög háan fastakostnað sem er sambærilegur við mörg önnur stærri heimili og þar af leiðandi má segja jafnvel að daggjöldin séu of lág hvað það varðar. Við eigum eftir að fara yfir þessi málefni og það er nefnilega mjög mikilvægt að við fáum botn í þessa hluti áður en átak ríkisstjórnarinnar verður að veruleika, mjög merkilegt átak upp á 370 rými, en þessi mál verða að vera komin á hreint áður en við förum í að stórfjölga hjúkrunarrýmum til viðbótar.