133. löggjafarþing — 26. fundur,  14. nóv. 2006.

fjáraukalög 2006.

47. mál
[19:22]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það vekur athygli mína og ég segi nú ekki kátínu en svona næstum því að stjórnarliðar tala alltaf um ráðherraefni stjórnarandstöðunnar. Það er greinilegt að stjórnarliðið býst við ríkisstjórnarskiptum og er farið að horfa á þá sem koma hér upp og tala fyrir stjórnarandstöðuna fyrst og fremst sem líkleg ráðherraefni (Gripið fram í.) í þetta og hitt ráðuneytið. Það er ágætt. Þetta er sérstaklega áberandi í fari framsóknarmanna, eðlilega. Ég held að nú sé svo komið að gamla Framsókn átti sig á að hún er um það bil að klára sig í þjónustunni við íhaldið og ekki við því að búast að henni endist örendið í mikið lengri vist á höfuðbólinu. Þeir búa sig nú undir kalda útlegð frá valdakötlunum og ylnum þar og það gerist æ meira áberandi í máli þeirra.

Ég held að Vinstri hreyfingin – grænt framboð í framgöngu sinni hvað varðar ríkisfjármál og efnahagsmál hafi verið algerlega sjálfri sér samkvæm. Við vorum eini flokkurinn sem skar sig úr í því að við töldum skattalækkanir, miklar skattalækkanir á hátekjufólk óskynsamlegar, m.a. vegna þenslu, vegna þess að þær eru olía á eld þenslunnar. En einnig vegna þess, og þar erum við algerlega sjálfum okkur samkvæm, öfugt við suma aðra, að við höfum aldrei verið feimin við að segja: Til að hægt sé að reka öflugt velferðarkerfi, búa vel að öldruðum, öryrkjum, leggja vel til mennta- og heilbrigðismála, þarf tekjur.

Það er meiri sómi yfir því, það er meiri reisn yfir því að mínu mati, hv. þingmaður, að þora að standa í lappirnar og vera sjálfum sér samkvæmur hvað varðar grundvallaráherslur í stjórnmálum en útúrsnúningaaðferðir af því tagi sem hv. þingmaður var með áðan, t.d. þegar hann snýr út úr skrifum á heimasíðu Ögmundar Jónassonar og ætlar mér svo að fara að svara fyrir það. Ögmundur Jónasson hefur hvergi sagt að það eigi að reka bankana úr landi. Það er hv. þingmanni til skammar eða minnkunar að reyna að færa umræðuna niður á það plan að við séum að eiga orðastað á grundvelli útúrsnúninga á ummælum manna. (Forseti hringir.) Höfum bara rétt eftir og ræðum um pólitíkina.