utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég auðvitað verð að sætta mig við hvaða áherslur hv. þingmaður hefur í þessum ræðustól. Hins vegar finnst mér full ástæða til að ganga svolítið eftir því og velta fyrir mér, þegar hv. þingmaður talar um að Samfylkingin telji sig hafa fullt svigrúm til þess að taka varnarsamninginn og þau mál sem honum tengjast til endurskoðunar, á hvaða forsendum þau mál verði tekin til endurskoðunar. Hverjar verða þær forsendur sem Samfylkingin leggur til grundvallar? (Gripið fram í.)
Nú liggur fyrir varnarsamningur í breyttri mynd sem gengur út frá því að Bandaríkjamenn og Íslendingar hafa með sér samkomulag (Gripið fram í.) um það að Bandaríkjamenn koma til aðstoðar samkvæmt varnaráætlun ef hættuástand skapast. Það er auðvitað það sem liggur á borðinu. Þegar Samfylkingin segir að hún vilji taka þessi mál til endurskoðunar hlýtur maður að kalla eftir því á hvaða forsendum sú endurskoðun eigi að fara fram. Skiptir það ekki máli þegar gengið er til kosninga í vor að kjósendur geri sér einhverja grein fyrir því hvort Samfylkingin hefur yfir höfuð einhverja hugmynd um það hvað hún vill gera í þessu máli? (ÞSveinb: … ykkar forsendur.)
Okkar forsendur liggja fyrir, hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir. (Gripið fram í.) Það er hins vegar eftirtektarvert að Samfylkingin sem gagnrýnir þetta fyrirkomulag í dag telur sig hafa svigrúm til að endurskoða það, vill ekki segja neitt um það á hvaða forsendum á að taka málin til endurskoðunar, á hvaða forsendum eigi að byggja nýja varnarstefnu. Ég held að það sé kannski það mikilvægasta fyrir kjósendur, að heyra þá afstöðu nú á þessum vetri þegar við göngum til kosninga í vor. Það eru þau mál sem snúa að okkur beint, það eru þau mál sem standa okkur næst og það eru kannski þau brýnustu úrlausnarefni sem við þurfum að standa frammi fyrir á næstu missirum.