utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Við Íslendingar berum ekki ábyrgð á þeim upplýsingum sem lágu til grundvallar því að ráðist var inn í Írak. Það er útúrsnúningur. Við bárum ekki ábyrgð á innrásinni. Við trúðum hins vegar þeim upplýsingum sem fyrir okkur voru lagðar eins og ýmsar þjóðir aðrar.
En það var eftirtektarvert að fulltrúi Samfylkingarinnar, sá gamli sjálfstæðismaður hv. þm. Ellert B. Schram, minntist ekkert á hvernig hann vildi bregðast við í Írak nú. En um það snúast málin þegar rætt er um þennan heimshluta og einnig um það hvort Íranir séu að koma sér upp kjarnorkusprengju og þar fram eftir götunum, málefni Ísraels og Palestínu o.s.frv.
En ástæða væri til þess auðvitað að hv. þingmaður lýsti skoðun sinni á því, síðar við þessa umræðu, hvernig hann vilji að við Íslendingar stöndum að málum í Írak nú. Það er það sem skiptir máli. (Gripið fram í.) Við þurfum ekki að biðjast afsökunar á neinu, hv. þingmaður. Mig minnir nú að þessi hv. þingmaður hafi haft þá tilhneigingu að biðja einlægt aðra um að biðjast afsökunar en sjaldan gert það sjálfur.
Hins vegar vil ég lýsa yfir ánægju minni með að hann skuli ávarpa mig fyrstan manna hér á þinginu. Við sátum saman á þinginu 1971, á jólaföstu, þannig að það er gaman að við getum rifjað upp 35 ára afmæli í þingsalnum saman innan nokkurra daga.