utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Varðandi þá tillögu sem kom hér síðast fram í máli hv. þingmanns þá held ég að þetta sé mál sem utanríkisráðherra verði að taka til mjög alvarlegrar skoðunar og reyna að ganga í sem allra fyrst. Svona tilboð koma ekki á hverjum degi.
Hv. þingmaður vék í máli sínu að upplýsingum þeim sem Colin Powell baðst afsökunar á. Það er rétt að hann gerði það. Hann baðst afsökunar á því að hafa komið fram fyrir hönd þjóðar sinnar í þessu mikilvæga máli í öryggisráðinu með rangar upplýsingar og sagði að það hefði verið svartur blettur á sínum ferli. Hann var að sjálfsögðu ekki að tala um Íraksstríðið almennt heldur þennan dag og þær upplýsingar sem hann hafði í farteskinu.
Vegna þess að hv. þingmaður kallaði eftir afstöðu íslenskra stjórnvalda í þeim efnum vil ég rifja upp ummæli fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra Halldórs Ásgrímssonar sem hefur ítrekað sagt að hann telji að þessar upplýsingar hafi verið rangar og bætt því við hann telji að honum sé mjög til efs að sama ákvörðun hefði verið tekin ef réttar upplýsingar hefðu legið fyrir.
Að hinu leytinu til vil ég taka undir ýmislegt sem kemur fram í máli hv. þingmanns um málefni Ísraels og honum meðal annars til hróss en bæta þó við að sendiherra þess ágæta ríkis hefur verið á ferð hér á landi á síðustu dögum. Það er mjög mikilvægt að við tölum við þær þjóðir sem við erum ósáttir við í einhverju tilliti. Ég er ekki fylgismaður þess að við hættum að tala við þá sem við erum ósammála. Það er einmitt brýnt að tala við þá sem við erum ósammála og færa rök fyrir okkar sjónarmiði og gagnrýna ef svo ber undir. Þess vegna vil ég fagna því að það hefur verið gert, meðal annars af hálfu hæstv. utanríkisráðherra og hv. þingmanns en gagnrýna þá um leið sem vildu sýna mótmæli sín í verki með því að tala ekki við sendiherrann vegna þess ef við mundum öll nota þá aðferð þá kæmust slík mótmæli aldrei á framfæri.