133. löggjafarþing — 29. fundur,  16. nóv. 2006.

utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:37]
Hlusta

Halldór Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Það kemur í ljós að ýmislegt var ekki borið undir ríkisstjórnina á þeim tíma sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon vitnar til. Það hefur nú verið upplýst. Ég hef séð af skrifum þingflokksformanns Vinstri grænna, hv. 9. þm. Reykv. s. að hann leggur trúnað á að formaður Framsóknarflokksins og formaður Alþýðuflokksins hafi séð ástæðu til, með laumulegum hætti, að senda mann til Þýskalands til að athuga hvort minnst væri á Svavar Gestsson í Stasi-skýrslum.

Nú langar mig af þessu tilefni að vita, af því að talað er um að biðjast afsökunar, hvort formaður Alþýðubandalagsins á þeim tíma hafi vitað um þessa sendiför, Ólafur Ragnar Grímsson?