133. löggjafarþing — 29. fundur,  16. nóv. 2006.

utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:38]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Ég geri ekki ráð fyrir því að þáverandi fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi frekar en við félagar hans í ríkisstjórn, ég og Svavar Gestsson, haft hugmynd um þetta mál. Ég held að það liggi í hlutarins eðli að ef einhver okkar hefði fengið um það vitneskju þá hefðum við vitað um þetta allir. Því vil ég a.m.k. trúa þangað til annað kemur í ljós.

Varðandi ábyrgð á verkum ríkisstjórnar og ráðherra, svo það komi fram og fræðilega hliðin á því máli liggi fyrir í þessu sambandi, af því þetta virðist vefjast fyrir mönnum, þá er ríkisstjórn á Íslandi samkvæmt íslenskum stjórnarrétti og íslenskri stjórnsýsluhefð ekki svokallað fjölskipað stjórnvald. Öfugt t.d. við ríkisstjórn Svíþjóðar. Það leiðir af verkum að ef ráðherra sem fer með málaflokk kynnir ekki ákvarðanir sínar eða gjörninga í ríkisstjórninni þá liggur hin stjórnskipulega ábyrgð hjá honum en ekki ríkisstjórninni í heild vegna þess að ríkisstjórn á Íslandi er ekki fjölskipað stjórnvald.