133. löggjafarþing — 29. fundur,  16. nóv. 2006.

utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:13]
Hlusta

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú er ég ekki hokin af reynslu eins og hv. þm. Halldór Blöndal. Árin eru kannski farin að segja til sín hér. Það er hins vegar þannig að þegar við höfum rætt um kalda stríðið á hinu háa Alþingi, og ég minnist einmitt þess sem var rætt hér í fyrra, hef ég einmitt hvatt þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að gera upp við sína fortíð eins og þeir sífellt hvetja aðra þingmenn til, þá sem einhvern tímann hafa kennt sig við einhvers konar vinstri skoðanir. Þá stendur ekki á þeim að hvetja menn til að gera upp við fortíð sína en þegar menn eiga að gera upp við hörmulegan stríðsrekstur Bandaríkjanna í Víetnam gegn þjóðfrelsishreyfingu Víetnama þarf ekki að gera neitt.

Og hvað með stuðning Bandaríkjastjórnar við skæruliða, hægri fasista í Mið- og Suður-Ameríkuríkjum, valdaránið í Síle árið 1973, stuðninginn við kontra-skæruliðana í Níkaragva, stríðsrekstur í Gvatemala og Hondúras og þannig mætti áfram telja, hæstv. forseti?

Nei, það kemur þeim ekki við af því að þeir eru enn þá að hugsa í gamla Sovét. Ég get upplýst hv. þm. Halldór Blöndal um það að Sovétríkin voru ekki á mínum vegum. Ætli ég hafi ekki verið 25 ára gömul þegar þau féllu? Og hef aldrei nokkurn tímann talað fyrir því skipulagi, hvorki hér né annars staðar. Hv. þm. Halldór Blöndal getur reynt að koma lygi sinni í þingtíðindin með því að koma hér upp og halda því fram aftur en ég skora á hann að reyna það ekki.