utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Það var svo sem ekki við því að búast að hv. þm. Halldór Blöndal sneri af villu síns vegar og héldi áfram að gera mér upp skoðanir um Sovétríkin, sem voru náttúrlega til þegar ég var barn og unglingur að aldri, það er rétt. Þau voru til þegar ég var barn og unglingur að aldri og um það bil með þeim hætti er samskiptum mínum best lýst við Sovétríkin, hæstv. forseti.
Hins vegar verða að teljast nokkur tíðindi að núna, 31 ári eftir að Bandaríkin hörfuðu frá Víetnam sé enn til maður uppi á Íslandi, hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Halldór Blöndal, fæddur fyrir seinna stríð, sem er að verja framgöngu Bandaríkjastjórnar í Víetnam-stríðinu. Þá getum við átt von á því að hann muni standa hér, ég veit ekki hvort hann verður á lífi eftir 30 ár, en þá get ég eins átt von á því að hann standi hér eftir 20–30 ár og verji framgöngu Bandaríkjastjórnar í Írak. (HBl: … hvort að þingmaðurinn ætli …) Honum væri best trúandi til þess. (Forseti hringir.) Honum væri best trúandi til þess.
(Forseti (JónK): Ég bið hv. þingmenn að …)
(Gripið fram í.) Já, vegna þess að hv. þm. Halldór Blöndal ber blak af stríðsglæpamönnum um allan heim með stuðningi sínum við Bandaríkjastjórn.