133. löggjafarþing — 29. fundur,  16. nóv. 2006.

utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:22]
Hlusta

utanríkisráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef alltaf sagt að það eru engar líkur á því að af allri þessari uppbyggingu álvera verði hér á landi. Ég tel raunar útilokað að hún geti átt sér stað.

Ég hef sagt opinberlega fyrir einu eða einu og hálfu ári síðan að mér finnst að þegar við séum komin upp í milljón tonn þá þurfum við virkilega að hugsa okkur um. Miðað við allar þær framkvæmdir sem hér eru taldar upp og ef Norsk Hydro ætlar að bætast við þá yrði ekkert vit í þessu. Þetta gengur ekki.