breyting á IX. viðauka við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2005 frá 29. apríl 2005, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB um markaði fyrir fjármálagerninga.
Eins og með fyrri ákvarðanir er gerð grein fyrir efni ákvörðunarinnar í tillögunni og er hún prentuð sem fylgiskjal með henni ásamt þeirri tilskipun sem hér um ræðir.
Tilskipun 2004/39/EB er viðamikil tilskipun sem tekur á helstu grunnþáttum verðbréfamarkaða. Tilskipunin byggist á Lamfallussy-ferlinu innan Evrópusambandsins sem miðar að því að evrópskur verðbréfamarkaður verði í fremstu röð í heiminum.
Tilskipunin miðar meðal annars að því að styrkja innri markað ESB á sviði fjárfestingarþjónustu þannig að leyfi til að stunda fjárfestingarþjónustu í einu aðildarríki veitir heimild til að stunda slíka þjónustu í öðrum aðildarríkjum með eða án stofnunar útibús.
Þá er fjallað um upplýsingagjöf, fjárfestavernd og bestu framkvæmd, þ.e. að fjármálafyrirtæki skuli ná bestu niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína. Einnig eru settar reglur um skipulega verðbréfamarkaði sem taka meðal annars til leyfisveitinga, hæfis stjórnenda, hagsmunaárekstra og upplýsingagjafar. Unnið er að innleiðingu tilskipunarinnar í viðskiptaráðuneytinu og er gert ráð fyrir að frumvarp þess efnis verði lagt fyrir Alþingi á vorþingi.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umr. og utanríkismálanefndar.