samgöngur til Vestmannaeyja.
Virðulegur forseti. Eins og hv. þm. Hjálmar Árnason veit hef ég verið óþreytandi sem samgönguráðherra að leita allra leiða til að styrkja og bæta samgöngur við Eyjar. Nú síðast var tekin ákvörðun um að semja við Flugfélag Íslands um aukið og bætt flug með sérstökum ríkisstuðningi.
Fyrir ekki margt löngu var ferðum með Herjólfi fjölgað. Þær eru nú tvær á dag alla daga ársins þannig að þar hefur orðið heilmikil bragarbót. Hins vegar er það rétt sem fram kemur hjá hv. þingmanni að í samningi við skipafélagið sem sér um siglingarnar er gert ráð fyrir því að ef breytingar verða séu tækir endurskoðunarmöguleikar en þeir hafa fyrst og fremst snúið að því að gera breytingar ef aðrar og enn meiri breytingar yrðu gerðar, svo sem ef tekin yrði ákvörðun um að stytta siglingaleiðina með höfn við Bakkafjöru. Samningurinn við Eimskipafélagið er til fimm ára frá síðustu áramótum.
Það liggur hins vegar fyrir að breytingar á Herjólfi til þess að gera hann e.t.v. öflugri og afkastameiri kosta mjög mikið. Nefndin sem var undir forustu Páls Sigurjónssonar komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki skynsamlegur kostur. Ég er þó áfram tilbúinn að skoða alla möguleika til að bæta samgöngur við Eyjar. Stóra verkefnið núna er að fá niðurstöðu í Bakkafjörurannsóknina því að ég tel að það sé nauðsynlegt áður en við tökum aðrar ákvarðanir sem lúta að samgöngum við Eyjar.