133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

hlutafélag um Flugmálastjórn.

[15:21]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason virðist ekki hafa fylgst með því hvað er að gerast. Alþingi Íslendinga hefur samþykkt lög um breytingar á starfsemi Flugmálastjórnar Íslands. Starfseminni verður skipt upp frá og með næstu áramótum — það er unnið fullum fetum að því og sú vinna er langt komin — annars vegar á þann veg sem snýr að flugöryggissviðinu sem verður Flugmálastjórn Íslands, búið er að skipa nýjan flugmálastjóra frá og með næstu áramótum sem tekur við því verkefni að stjórna Flugmálastjórn Íslands hinni nýju, og hins vegar í hlutafélag í eigu ríkisins.

Það er ekki verið að einkavæða þessa starfsemi, það er ekki verið að stofna hlutafélag um hvern einasta flugvöll í landinu, þingmaðurinn virðist ekki hafa fylgst með. Eitt félag, Flugstoðir ohf., mun sjá um þessa starfsemi. Þar er valinn maður í hverju rúmi við að undirbúa hana í góðu samstarfi. Hins vegar þarf, eins og oft vill verða, að semja um ýmislegt á lokastiginu, eins og það sem komið hefur fram og snýr að flugumferðarstjórum. Það varðar fyrst og fremst lífeyrisréttindi þeirra vegna þess að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins þarf að koma þar að, m.a. þarf að ná samkomulagi við stjórn lífeyrissjóðsins. Ég bind miklar vonir við að þar náist góð sátt. Við höfum m.a. verið með sérfræðinga frá Eurocontrol, evrópsku flugstjórnarstofnuninni, sem hafa unnið að því að endurskipuleggja m.a. vaktakerfi hjá flugumferðarstjórum o.fl. Það starf gekk afskaplega vel. Ég á ekki von á öðru en að þetta gangi allt upp að lokum og sé ekki neitt í spilunum sem gæti leitt til annarrar niðurstöðu. En ég endurtek að það er alger misskilningur hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni að verið sé að (Forseti hringir.) einkavæða flugvallastarfsemina. Það er ekki verið að því.