133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[15:51]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það var greinilegt á orðum hv. þingmanns í fyrra andsvari hans að hann var að tala um umræðu sem fór fram fyrr á þessum fundi og það var það sem ég átti við. Nú skil ég enn þá minna í því hvernig getur staðið á því að hv. þingmaður er að taka allt annað mál inn á þennan dagskrárlið sem nú er til umræðu.