Landsvirkjun.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé misskilningur að ummæli fyrrverandi iðnaðarráðherra hafi lotið að einkavæðingu. Þau lutu að breytingu á réttarformi og hugsanlegri aðild t.d. lífeyrissjóða og annarra félagslegra aðila að þessum fyrirtækjum. Sú breyting sem nú verður hefur engin áhrif á það. Hún er einfaldlega liður í þessari hreinsun eignaraðstæðna milli mismunandi aðila á orkumarkaðnum, eins og ég sagði áðan. Hún stuðlar hvorki að né hindrar aðra þróun á orkumarkaði. Hún er á engan hátt liður í neinu einkavæðingarferli.