133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[15:58]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fullyrði að það liggur mjög vönduð vinna sérfræðinga að baki því verðmati sem samkomulag varð um. Í því felst að sjálfsögðu, eins og alltaf er í viðskiptum, að það er til mismunandi mat, mismunandi skoðanir og mismunandi áherslur, eins og gengur. Um þetta varð hins vegar málefnalegt mjög vandað samkomulag. Ég hef enga ástæðu til annars en treysta því að það sé á traustum grunni.