133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[15:59]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að tjá mig um að ég er sammála efni þessa frumvarps en ég er samt sem áður með eina fyrirspurn sem mig langar að koma á framfæri. Aðdragandinn að þeirri spurningu er að á sínum tíma fengu Íslendingar, íslenska ríkið og Reykjavíkurborg svokallaða Marshall-hjálp og fyrir hana byggði ríkið m.a. Áburðarverksmiðju ríkisins sem síðar var seld og þá fékk ríkið þá fjármuni til sín.

Nú langar mig að spyrja: Í þeim samningi sem gerður hefur verið við Reykjavíkurborg um kaup á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, hvorum megin hryggjar liggur sú Marshall-aðstoð sem við Íslendingar fengum á sínum tíma til þess að byggja Sogsvirkjanir sem gengu svo inn í Landsvirkjun?