Landsvirkjun.
Hæstv. forseti. Mér er ekki kunnugt um að sú sögulega athugun á þessum viðskiptum hafi farið fram sem greiði úr því á öllu því árabili sem liðið er síðan Marshall-aðstoðin var greidd út til að unnt sé að rekja þá reikninga nákvæmlega. Mér er ekki kunnugt um það en sjálfsagt er hægt að vinna þá vinnu. Hins vegar er í þessum samningum ekki farið að grafast fyrir um sögulegar forsendur með slíkum hætti.
Þessi samningur fjallar aðeins um að gerð eru skipti milli þessara sveitarfélaga og ríkisvaldsins og hefur ekki verið efast um lagalegar forsendur þess.