133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[16:58]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að segja að mér finnast vangaveltur hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar um það hver hafi siðferðilegan rétt til að selja hverjum vera fullkomlega eðlilegar og fullkomlega réttmætar, vegna þess að við lítum á raforkugeirann og raforkufyrirtækin í landinu sem eign allra landsmanna. Það er vitað mál, og við þekkjum það öll, að þar sitja ekki allir við sama borð. Það er ekki sama að búa á Vestfjörðum og í Reykjavík hvað þetta snertir. Ég vil því byrja á því að taka undir með hv. þingmanni hvað þetta snertir.

Hvað varðar það frumvarp sem hér liggur fyrir, um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrar í Landsvirkjun, þá langar mig til að staðnæmast við þrjú atriði sem reyndar hafa einkennt umræðuna undanfarna daga. Í fyrsta lagi við verðlagið, verðið sem greitt er til Reykjavíkurborgar og Akureyrar fyrir hlut þeirra í Landsvirkjun. Í öðru lagi langar mig til að spyrja örlítið út í Landsnetið og hafa uppi vangaveltur hvað það snertir. Og í þriðja lagi það sem hæstv. ráðherra vék að, að hér væri um að ræða áfanga á lengri vegferð. Mig langar til að spyrjast fyrir um þá vegferð og hvert henni sé heitið.

Fyrst um verðlagið, það er umræða sem hefur fyrst og fremst farið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og hjá Akureyringum einnig. Ég ætla í sjálfu sér ekki að fara nákvæmlega í saumana á þeim málum en vek athygli á því að þetta gerist, það er gengið frá þessu samkomulagi nánast umræðulaust. Enda segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði í Reykjavík, í fyrirsögn í grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í byrjun nóvember, „Seld án umræðu“. Hún segir frá því í greininni að hún hafi lesið um það í blöðum hvernig þetta hafi gengið fyrir sig og þeim hafi síðan verið stillt upp, minni hlutanum, frammi fyrir gerðum hlut. (Gripið fram í: Fín kaup.) Síðan deila menn um hversu góð kaupin eru og hagstæð fyrir hvern og þá vek ég athygli á að það er hægt að nálgast það frá ýmsum hliðum, eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gerði, og síðan getum við skoðað þetta þröngt út frá hagsmunum Reykvíkinga, sem mér heyrist telja sig fá of lítið í sinn hlut, enda sé hér rýrari kostur en hafi verið til umræðu fyrir fáeinum mánuðum sem allir voru sammála þá um að hafna.

Þetta er umræða út af fyrir sig, þ.e. verðið, og ég ítreka að það er hægt að horfa á það frá ýmsum sjónarhornum. Það er líka hægt að skoða það út frá hagsmunum raforkukaupenda. Margir hafa áhyggjur af því að þetta hafi ekki verið klók viðskipti af hálfu Reykvíkinga því þetta komi til með að hækka raforkuverð í Reykjavík. Á móti hefur verið fullyrt að Reykvíkingar komi til með að verða sjálfum sér nógir í raforkuframleiðslu en við höfum ekki séð ítarleg gögn um það þannig að það er erfitt að gera sér fyllilega grein fyrir því hver staðan verður hvað þetta snertir.

Enn einn þátturinn sem menn hafa vísað til er eignarhluturinn í Landsneti og hvaða áhrif það komi til með að hafa vegna þess að Landsvirkjun á drjúgan hlut í Landsneti eða kemur til með að eiga, um 80% ef ég veit rétt, og helminginn af því áttu Reykvíkingar og Akureyringar. Hvaða þýðingu hefur það að verða af þessari eign? Þetta eru atriði sem á eftir að upplýsa og eru nokkuð á huldu en þetta eru þættir sem kjörnir fulltrúar í Reykjavík hefðu viljað ræða í opinni lýðræðislegri umræðu. Þegar hæstv. iðnaðarráðherra talar um að þetta sé gert í góðu samkomulagi er það ekki á traustari grunni en svo að menn þorðu ekki að fara með málið í opna lýðræðislega umræðu í borginni heldur var gengið frá því í bakherbergjum og síðan komið með frumvarpið inn í þingið. Þá gerist það náttúrlega eins og venja er að stjórnarþingmönnum er stillt upp við vegg og þeir látnir ganga sín svipugöng eins og venjulega og greiða atkvæði með ákvörðunum sem teknar eru í Stjórnarráðinu. Þetta eru vinnubrögðin.

Varðandi Landsnetið þá langar mig til að beina spurningu til hæstv. ráðherra: Hvernig sjá menn eignarhaldið á Landsneti í framtíðinni? Talað er um að Landsnet eigi að vera í opinberri eigu, að það sé sá þáttur raforkukerfisins sem eigi að vera á vegum hins opinbera, þannig hef ég skilið það, en verður það í gegnum Landsvirkjun eða í gegnum aðra aðila? Hvernig er þetta hugsað? Þetta er eðlileg spurning, ekki síst í ljósi þess að uppi eru áform um að einkavæða Landsvirkjun. Það er ekki rétt sem hæstv. ráðherra sagði að forveri hans í embætti, hæstv. ráðherra Valgerður Sverrisdóttir, hafi ekki léð máls á þessu. Hún gerði það, hún hefur talað um það. Það er rétt sem núverandi hæstv. ráðherra segir að það var m.a. vísað í lífeyrissjóðina en lífeyrissjóðir eru líka einkaaðilar og haga sér nákvæmlega eins og fyrirtæki á markaði með fjárfestingar sínar. Þar erum við einmitt komin að þriðju spurningunni, sem er: Hvert er förinni heitið? Og ég ætla eina ferðina enn, ég er búinn að gera það oft áður, að vitna í ummæli forvera hæstv. ráðherra í embætti, hæstv. ráðherra Valgerði Sverrisdóttur, sem tjáði sig í Kastljóssþætti 17. febrúar árið 2005. Þar var þetta mál rætt og spurt út frá ákvörðunum um að ganga til samninga við Reykjavíkurborg og Akureyri um sölu á hlut þeirra í Landsvirkjun.

Fréttamaður spurði út í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og sagði, með leyfi forseta, og ætla ég að lesa þetta viðtal upp:

„Fréttamaður: En þessi viljayfirlýsing, sem var undirrituð í dag, er þetta eins og er talað er um fyrsta skrefið í átt að einkavæðingu Landsvirkjunar?

Valgerður Sverrisdóttir: Já, það eru uppi áform um það, að síðan breyta þessu fyrirtæki sem verður til í hlutafélag, hugsanlega árið 2008. Þá erum við komin í gegnum Kárahnjúkauppbygginguna og eftir að fyrirtækið er orðið hlutafélag að þá er ekki ólíklegt og reyndar áform uppi um það að aðrir aðilar geti komið að fyrirtækinu. Þetta er náttúrlega gríðarlega verðmætt fyrirtæki. Vonandi verður ekki síður verðmætt á þessum tíma og það er engin sérstök ástæða til þess að ríkið haldi eitt utan um það.

Fréttamaður: Sérðu fyrir þér hverjum verði boðið að kaupa hluti í þessu hlutafélagi sem þá verður stofnað um Landsvirkjun? Getur almenningur keypt eða verður þetta boðið út einhvern veginn öðruvísi?

Valgerður Sverrisdóttir: Við erum náttúrlega bara ekki komin svo langt. Þetta er svo langt frammi í framtíðinni, en almennt hefur það verið þannig þegar ríkið hefur verið að selja eignir sínar að þá hefur það verið gert allt mjög faglega, vil ég halda fram. Og það hefur svo sem gengið ágætlega, það sem við höfum einkavætt fram að þessu.“

Er þetta ekki alveg skýrt? Er ekki verið að tala um einkavæðingu, áform um að einkavæða Landsvirkjun? Síðan hefur hæstv. ráðherra verið að reyna að hlaupa frá þessum ummælum en þau eru alveg kýrskýr, það er alveg kýrskýrt að um þetta hefur verið rætt. Hæstv. forsætisráðherra Geir H. Haarde hefur líka talað um að það sé æskilegt að einkavæða Landsvirkjun. Hv. þm. Kjartan Ólafsson — ég nefni dæmin af handahófi nánast — sagði í umræðu um Rarik á sínum tíma, hlutafélagavæðingu Rariks, og hv. þm. Pétur H. Blöndal tók undir það, að að sjálfsögðu yrðu þessi fyrirtæki seld ef gott verð fengist fyrir þau. Ég held að það hafi einmitt verið orðað á þennan veg, að sjálfsögðu yrðu þau seld. Það er þetta sem við erum orðin svo þreytt á, að ráðist sé í kerfisbreytingar undir fölskum merkjum, undir fölsku flaggi. Það á ekki við um hv. þm. Pétur H. Blöndal, sem hefur talað um að stuðningur sinn við Ríkisútvarpið eða hlutafélagavæðingu þess byggi á því að þar með sé verið að auðvelda sölu þess. Ég hefði gaman af að heyra hv. þm. Pétur H. Blöndal staðfesta það í ræðustól að nýju að svo sé. Íhaldsþingmennirnir tala alveg hreint út en Framsókn lötrar alltaf á eftir þeim í dulargervi. Og því miður heyrðum við hæstv. iðnaðarráðherra segja það aftur núna áðan að það væru engin áform uppi um að einkavæða en það gæti jú komið til tals að lífeyrissjóðir kæmu að málinu.

Gerir hæstv. ráðherra sér grein fyrir því — ég efast ekki um að hann gerir það enda öllum hnútum kunnugur á því sviði — að lífeyrissjóðirnir eru lögþvingaðir til að fjárfesta aðeins í þeim fyrirtækjum og framkvæmdum sem gefa af sér bestan arð að því tilskildu að um örugga fjárfestingu sé að ræða? Þetta þýðir að lífeyrissjóðirnir eru mjög óheppilegir eignar- og rekstraraðilar að almannaþjónustu. Þeir eru mjög varasamir fjárfestar á því sviði. Hvers vegna? Ef á móti blæs eru þeir farnir. Lögum samkvæmt eru þeir farnir. Almannaþjónustan þarf að byggja á miklu meiri stöðugleika en markaðurinn getur nokkurn tíma boðið upp á, en það er svo undarlegt að heyra málsvara ríkisstjórnarinnar, þá sem hafa talað fyrir markaðsvæðingu grunnþjónustunnar, tala um þetta nánast eins og það sé forskrúfuð hugmyndafræðileg skrúfa á sálinni. Það er ætíð neitað að horfa á reynsluna.

Hæstv. fyrrverandi iðnaðarráðherra sagði t.d. fyrir fáeinum mánuðum, með leyfi forseta:

„Almennt séð, þá hefur þetta gengið vel, ef við tölum um Evrópu, þessi markaðsvæðing raforkukerfanna. Og það held ég sé nú svona almenn skoðun.“

Þetta væri allt í lagi ef einhver rök væru fyrir þessu en á sama tíma og þetta var sagt var staddur hér á landi framkvæmdastjóri Evrópusambandsins á sviði orkumála, Andris Piebalgs, sem lýsti því yfir að þetta hefði gengið í gagnstæða átt, mjög illa. Samkeppnin á raforkumarkaðnum væri miklu minni en menn hefðu gert ráð fyrir og verðlagið hefði hækkað miklu meira. En á sama tíma kemur iðnaðarráðherra okkar fram og segir að þetta sé allt í lukkunnar velstandi og það sé almenn skoðun að þetta hafi gefið góða raun. Eru þetta blekkingar eða hafa ráðherrar einfaldlega ekki kynnt sér málið? Og áfram skal haldið.

Ég hef áður vitnað í matsfyrirtækið Fitch sem í febrúar á þessu ári gerði úttekt á raforkufyrirtækjum erlendis og komst að þeirri niðurstöðu að opinberu fyrirtækin stæðu sig miklu betur en einkafyrirtækin. Ég er með útdrátt úr þessari skýrslu, ég hef lesið úr henni áður. Þegar rafmagnið fór af nokkrum fylkjum og stórborgum í Bandaríkjunum spurðu margir og m.a. í þessum sal: Hvers vegna að leita okkur fyrirmynda hjá þeim sem geta ekki haldið ljósunum logandi í stað þess að horfa til þeirra sem hafa staðið sig vel? Nákvæmlega það sama er að gerast á Norðurlöndunum, þar hefur markaðsvæðingin leitt til hærra verðs, hærra verðlags. Þegar vakin var athygli á þessu — það hefur oft blossað upp mikil umræða um þetta, t.d. í Noregi — þá segja menn, hugmyndafræðingarnir með skrúfuna á sálinni: „Ja, markaðurinn er bara ekki enn farinn að virka. Fólk er enn ekki farið að átta sig á því að hægt er að velja um fyrirtæki.“ En raforka er bara ekki svona, þessi markaður hagar sér ekki svona. Menn fara ekki að sofa á kvöldin með þeim ásetningi að þegar þeir vakni á morgnana þurfi þeir endilega að vita hvar besti prísinn á raforkumarkaði sé þann dag. Þannig reyndist þetta líka á fyrirtækjamarkaði t.d. í Bretlandi. Það voru allt aðrir þættir sem réðu för, þar á meðal stöðugleikinn.

Kennir fákeppnin á olíumarkaði okkur ekkert? Ekki neitt um samráðið? Og þá er komið að spurningunni: Hvert er förinni heitið, hæstv. ráðherra? Hver er framtíðarsýnin? Hvað sjá menn í kortunum? Verða hér eitt, tvö eða þrjú orkufyrirtæki? Nú er verið að gera Rarik og Orkubú Vestfjarða að dótturfyrirtækjum. Fylgir Norðurorka í kjölfarið? Sameinast Orkuveitan og Hitaveita Suðurnesja? Verður þetta allt að einu fyrirtæki? Hver er framtíðarsýn? Hvert erum við að stefna? Til hvers er leikurinn gerður?

Þegar nýju raforkulögin voru samþykkt og nokkrir mánuðir liðnir lýsti hæstv. iðnaðarráðherra því yfir að þetta væri allt á tilraunastigi. Þegar fréttirnar fóru að berast um 35% hækkum milli áranna 2004 og 2005 til ferðaþjónustubænda, þegar forsvarsmenn orkuveitnanna, Norðurorku, og ég man ekki betur, Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur, kvörtuðu yfir lagabreytingunum og sögðust ekki þekkja til nokkurs einasta manns sem teldu þær hafa verið til góðs, þá hélt hæstv. ráðherra sínu striki. Meira að segja hún var að framfylgja hugmyndafræði. En ef hugmyndafræðin leiðir út í þessar ógöngur þarf þá ekki að endurskoða hana?

En spurning mín er sú og raunar tvíþætt — í fyrsta lagi var ég búinn að nefna það að fá svör frá hæstv. ráðherra um eignarhaldið á Landsneti, hvort það verði beint frá hinu opinbera eða í gegnum fyrirtæki sem hugsanlega verður einkavætt — en í öðru lagi: Hver er framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar? (Forseti hringir.)