133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[17:32]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þessu tré verður veifað. Ég vil leggja áherslu á það að yfirlýsingar sem hafa verið gefnar í þessum sal úr ræðustóli um hvað raunverulega vaki fyrir stjórnvöldum þegar hlutafélagavæðing hefur verið annars vegar hafa oftar en ekki verið sviknar.

Ég man eftir heitstrengingunum öllum í sambandi við hlutafélagavæðingu Landssímans á sínum tíma, ekki bara innan veggja þingsins heldur utan einnig. Það sama gilti reyndar um ríkisbankana. Þar var bara verið að breyta formi. Síðan var allt svikið. (ÖS: Það lá nú fyrir.) Það lá nú fyrir, segir hv. þm. Össur Skarphéðinsson varðandi bankana. Nei, þessar yfirlýsingar voru gefnar en hins vegar skal ég taka það fram að mér finnst ekki saman að jafna að öllu leyti bönkunum annars vegar og Landssímanum hins vegar. Varðandi Landssímann var þetta mjög afdráttarlaust. Síðan var allt svikið. Þannig hefur það gengið fyrir sig. Við erum mörg hver orðin mjög þreytt á þessum endalausu svikum af hálfu ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

Ætli ég láti þetta ekki gott heita að sinni.