Landsvirkjun.
Hæstv. forseti. Það er óvanalegt að hv. þingmaður sé ekki viss í sinni sök. Mér fannst eins og hann talaði svolítið þannig í ræðu sinni. Ég nefndi dæmi um að flokkur hans hefði gert samkomulag við hinn flokkinn í ríkisstjórninni um að setja eigi auðlindir í þjóðareign inn í stjórnarskrána. Þar hefur verið talað um auðlindir sjávar. Það liggja líka fyrir niðurstöður. Flokkurinn er búinn að vera í ríkisstjórn, þ.e. flokkur hv. þingmanns. Niðurstöður liggja fyrir um þjóðlendur. Ég hef ekki heyrt það fyrr að Sjálfstæðisflokkurinn stefni að því að einkavæða þær þjóðlendur. Það er þá alveg nýtt ef það er orðin stefna flokksins. Þess vegna langar mig til að fá upplýsandi umræður um þetta eignarhald til framtíðar.
Ég er algjörlega ósammála hv. þingmanni hvað það varðar. Ég tel að það sé ákaflega hættuleg leið ef menn ætla hana, þ.e. að gera öll lönd og auðlindir að einkaeign í landinu. Því við erum ekki að tala um lítið. Við erum að tala um öll lönd og auðlindir sem eru í þjóðlendunum. Við erum að tala um allan hafsbotninn í kringum landið og auðlindir á honum. Við erum að tala um hafsvæðin í kringum landið, lífríkið í hafinu. Það er mér að minnsta kosti ekki hugnanlegt að menn tali um að einkavæða þetta allt saman og ég tel ekki að saga eignarhalds í einkaeign sé neitt sérstaklega góð til að færa fram rök fyrir því. Það hefur vel sést á því hvernig einkaaðilar hafa eyðilagt auðlindir úti um allan heim og sú saga er til í hverju einasta landi, líka á Íslandi