Landsvirkjun.
Hæstv. forseti. Ég vil í nokkrum orðum fara yfir frumvarp til laga um breyting á lögum, nr. 42/1983, um Landsvirkjun, með síðari breytingum, sem rætt hefur verið í dag. Það er alveg ljóst að Vinstri hreyfingin – grænt framboð mun greiða atkvæði gegn frumvarpinu eins og það liggur fyrir og þeirri hugmyndafræði sem því liggur að baki.
Fram kom hjá fulltrúum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs við sölu á eignarhlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar, sem þetta frumvarp byggist á og er til komið vegna þess að Landsvirkjun hefur gengið frá samningum við þessi tvö stóru sveitarfélög um kaup á eignarhlut þeirra í Landsvirkjun, með þeim fyrirvara að það sé samþykkt með þessu frumvarpi.
Einnig er ljóst að með því að taka upp EES-tilskipunina um fyrirkomulag raforkusölu, sem við komum í raforkulög 2002, tókum við upp lagaumhverfi sem ég og við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði teljum aldeilis óviðunandi fyrir eyland sem er það langt frá öðrum mörkuðum að ekki er í náinni framtíð möguleiki á að koma svo hagkvæmt sé rafstreng frá landinu yfir til annarra meginlanda, staða eða landsvæða þar sem væri þá hægt að tala um samkeppni á raforkumarkaði. Landið er víðfeðmt. Við erum fá og hér innan lands er mjög erfitt að koma á virkri samkeppni eins og EES-tilskipunin byggir á, sem sé samkeppni og markaðsvæðingu á raforkumarkaði. Hugsanlega er hægt að stuðla að slíkum markaði á meginlandi Evrópu og víðar þar sem hægt er að koma á samkeppni milli landa og milli stórra fyrirtækja. En við höfum ekki slíkar aðstæður hér á landi. Í samanburði við hinn evrópska markað höfum við hér á landi Rarik, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur, Norðurorku og Orkubú Vestfjarða sem hafa af litlum burðum getað verið á samkeppnissviði innan lands en það hefur bara ekki virkað. Að útiloka slíka samkeppni þó í litlum mæli sé með því að halda síðan áfram að sópa undir Landsvirkjun fleiri fyrirtækjum, eins og Rarik og Orkubúi Vestfjarða, er náttúrlega alveg með ólíkindum, hæstv. forseti. Að sama ríkisstjórn skuli byggja hugmyndafræði sína á samkeppni en á sama tíma í raun að útiloka þá litlu möguleika sem við höfum.
Það að hafa síðan undir raforkusölu Landsvirkjunar til stóriðju hér á landi í þeim mæli sem hefur verið og fyrirsjáanlegt er að stefnt er að og skella síðan öllu saman undir sama hatt með dótturfyrirtækjunum eins og Rarik og Orkubúi Vestfjarða, sem yrðu þá að sjá bæði um raforkusöluna á innanlandsmarkaði og til stóriðju, þá spyr maður sig: Hvar er styrkur eftirlitsaðilans að fylgjast með hvar mörkin eru? Hvar liggur orkuverðið? Hvernig er það yfirfært á milli sviða?
Ljóst er að markmiðum orkulaganna frá 2002 hefur ekki verið náð. Rafmagnsverð bæði til neytenda og til lítilla og meðalstórra fyrirtækja hefur hækkað svo um munar. Það er sorgarsaga að fylgjast með því hvernig hvert fyrirtæki á fætur öðru, lítil og meðalstór fyrirtæki, eru að fara frá raforkunotkun og yfir í olíubrennslu til að ná niður kostnaðarverði. Þetta er öfugþróun þar sem við höfum möguleika á að sjá landsmönnum fyrir vistvænni orku og möguleikum á að styrkja þá atvinnustarfsemi sem líður fyrir það í dag að vera ekki samkeppnishæf út af raforkuverði, eins og t.d. bændur sem eru með ylrækt eða gróðurhús. Þetta hefur margoft komið fram. Við erum að stefna í öfuga átt.
En verst þykir mér þó, hæstv. forseti, að þetta frumvarp til laga skuli vera lagt enn og aftur fram undir þeim formerkjum Framsóknarflokksins að þetta sé eingöngu til að bregðast við áorðnum hlut en ekki eigi að selja Landsvirkjun. Samt er það meiningin. Það er alveg ljóst í framhaldi af þessu að ef frumvarpið verður að lögum verður auðveldara að selja hluta eða fyrirtækið í heilu lagi eða í bútum. Vonandi náum við í næstu kosningum að komast út úr þeirri markaðshyggju sem nú ríður hér röftum að selja Landsvirkjun í heilu lagi. Nógu margir eru þeir sem hafa mikinn áhuga á og fylgjast grannt með hvenær hægt verði að kaupa hlut eða komast að kjötkötlunum þar sem Landsvirkjun, ef frumvarpið verður að lögum, verður mjög eftirsóknarverður kostur fyrir fjárfesta. Landsvirkjun býr yfir orkuöfluninni, hefur Landsnetið, hefur möguleika á frekari virkjunarkostum og á miklar eignir og landeignir. Til framtíðar litið er þetta fyrirtæki sem getur gefið góðan arð ef hugsað er eingöngu út frá hag fyrirtækisins og þar er sannarlega hægt að ná út miklum gróða ef svo skipast að eignir fyrirtækisins og eignarráð komast í hendur einkaaðila eða fyrirtækja sem eru á markaðsvellinum.
Hæstv. forseti. Það þarf ekkert að vera að spá inn í framtíðina, því að í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:
„Í samningnum“ — verið er að vísa til samningsins um kaup Landsvirkjunar á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar — „er kveðið á um að selji ríkissjóður eignarhlut sinn fyrir 1. janúar 2012, hvort heldur að hluta eða öllu leyti, þó að lágmarki 15%, skuli kaupverð á þeim eignarhluta sem seldur er taka leiðréttingum til hækkunar eða lækkunar, að teknu tilliti til nánar tilgreindra forsendna.“ — Sem vísað er til hér á undan. — „Ákvæðið á einungis við selji kaupandi eignarhlut sinn beinni sölu til þriðja aðila.“
Það er hreinlega gert ráð fyrir því í greinargerðinni að það geti komið til sölu á hluta eða öllu fyrirtækinu. Ég óska eftir því, eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson, að fá svör við því hvers vegna Reykjavíkurborg og Akureyrarbær eru látin hafa áfram ábyrgð á þeim veðum og samningum sem hafa verið gerðir fram til 2006. Hefði ekki verið eðlilegra að aflétta þeim kvöðum á þeim tíma sem frumvarpið tekur gildi, ef það gerir það?
Það er margt við þetta að athuga eins og það, hæstv. forseti, að mér hugnast ekki frekar en hv. þm. Pétri H. Blöndal, að verið sé í raun að skrumskæla lagasetningu á hinu háa Alþingi. Verið er með eins konar trixi, í staðinn fyrir að fara fyrst að lögum, að búa til örfyrirtæki sem heitir Eignarhlutir ehf. til þess að slá saman við Landsvirkjun svo hægt sé að halda sama eignarhaldsformi og er í dag. Um Landsvirkjun gilda sérlög. Landsvirkjun er sameignarfyrirtæki. Það er ekki sameignarfélag og verið er að halda því sameignarfyrirtæki inni með því að búa til örfyrirtæki sem heitir Eignarhlutir ehf. Þótt ég hafi lesið frumvarpið nokkrum sinnum yfir get ég ekki með nokkru móti séð hvernig eða hvort þetta litla fyrirtæki, það er trúlega ekkert lítið miðað við mörg önnur fyrirtæki í landinu en á lítinn hlut í Landsvirkjun, á að vera. Er hægt að búa til sérstakt fyrirtæki, ehf., án þess að það hafi þá sérstaka stjórn eða sérstök ákvæði gildi um það? Er hægt að búa það bara til á pappírnum og láta svo stjórn Landsvirkjunar vera yfir hvoru tveggja? Ég óska eftir að hæstv. iðnaðarráðherra fari aðeins yfir þetta og upplýsi okkur hvernig fyrirtækið, sem á að eiga 0,1% af hlut Landsvirkjunar, eigi í rauninni að starfa. Er þetta pappírsfyrirtæki? Er verið að fara í kringum lögin til að halda þessu eignarformi? Er þetta raunverulegt félag eða fyrirtæki, ehf., með sérstjórn sem hvergi kemur fram?
Það er líka verið að þrengja aðkomu almennings að stjórn Landsvirkjunar. Verið er að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm og segja má að þar sé verið að fækka um fulltrúa Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar. Einnig er verið að færa fyrirtækið úr forsjá iðnaðarráðherra til fjármálaráðherra og það er fjármálaráðherra einn og sjálfur sem á að skipa alla fulltrúana í stjórn. Ef til fundar er boðað með lögmætum hætti eru það þrír stjórnarmenn sem geta farið með allt ákvörðunarvald Landsvirkjunar Mér finnst þetta vera þrenging og þrenging að aðkomu almennings að fyrirtæki sem er þó eign íslenska ríkisins og almennings til að byrja með að minnsta kosti. Mér finnst þetta ákaflega lokuð stjórn og alvarleg þróun sem á sér stað.
Það er margt sem hægt væri að segja um frumvarpið núna í upphafi. Ég tel að fara þurfi mjög vel yfir það og með sveitarfélögunum og eins til að skoða hvaða áhrif EES-tilskipunin, raforkulögin frá 2002 sem áttu að tryggja samkeppni og lægra raforkuverð, hefur haft í för með sér og hvort þá megi áætla að enn frekari samþjöppun verði enn eitt skrefið í þá átt að koma hér á einokun í landinu. Að minnsta kosti er samkeppnin ekki höfð þar að leiðarljósi en markaðsvæðingin er aftur á móti á fullu skriði.
Ég öfunda ekki þingflokk Framsóknarflokksins og framsóknarmenn að fylgja frumvarpinu til enda, því svo margar breytingar höfum við gert á lögum og á rekstrarformi, t.d. hjá Símanum og bönkunum, þar sem Framsóknarflokkurinn stóð hér og sór og sárt við lagði að ekki stæði til að selja, einkavæða eða breyta rekstrinum. En það hefur samt verið gert. Einnig er ljóst hvað verðlag varðar og þjónustu að hvort tveggja hefur farið á verri veg. Það er lakari þjónusta á mörgum sviðum hjá Símanum og fyrirheitin um notkun á söluandvirði Símans að byggja upp dreifkerfið vítt og breitt um landið, það bólar ekki á því enn þá þó svo sveitarstjórnarmenn og fleiri kalli eftir svörum um hvernig eigi að nota Fjarskiptasjóð og hvernig eigi að nota sjóðinn til að bæta þjónustuna. Það bólar ekki á því enn þá.
Hæstv. forseti. Í staðinn fyrir að koma hreint til verks þá er ég hrædd um að enn og aftur sé verið að hola að innan þessa stofnun, eins og aðrar sem hafa verið algerlega áreynslulaust í eigu landsmanna og verið sé að undirbúa markaðsvæðingu á fyrirtækinu, enda eru nógu margir það fjáðir og það skynsamir að sjá hvaða gullkálfur er hugsanlega að koma á markaðinn innan fárra ára.