133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[19:15]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég spurði í fyrri ræðu minni í dag hvert ferðinni væri heitið. Mér finnst skipta miklu að við fáum ákveðnar vísbendingar um það. Ég hef því miður trú á að hve góður sem ásetningur hæstv. núverandi iðnaðarráðherra kann að vera — ég hef engar efasemdir um að hann sé góður — þá held ég að hann ráði ekki för þegar sterk fjármálaöfl hafa tekið völdin, studd stjórnmálaflokkum og öflum sem vilja fara með þær eignir áfram út á markaðstorgið. Þess vegna hlusta ég mjög grannt þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala og segjast styðja þessi áform vegna þess að þau auðveldi einkavæðingu.

En við erum ekki bara að tala um einhverja teoríu. Þetta eru ekki kenningar út í loftið. Við erum að tala um veruleika á Íslandi sem er þess eðlis að einstaklingar og smáir hópar hafa milli handanna gríðarlega fjármuni og af því að Framsóknarflokkurinn stendur fyrir þessu væri vert að rifja upp afskipti Framsóknarflokksins af einkavæðingunni, hvernig einstaklingar nátengdir Framsóknarflokknum hafa hagnast á einkavæðingunni, þar á meðal Búnaðarbankanum. Mig langar til að vitna í sjónvarpsviðtal frá 10. janúar árið 2006. Þar kom m.a. fram, með leyfi forseta:

„Fyrir einu og hálfu ári ákváðum við að efla fjárfestingar okkar utan Íslands og fara í frekari útrás en við þegar höfum verið í á undanförnum árum. Núna metum við það svo að ástandið á íslenska markaðnum, efnahagsástandið, sé afar hagstætt og verði það vonandi næstu árin. Jafnframt að Olíufélagið sé til þess búið að fara í frekari verkefni hér heima, svo sem í orkugeiranum hvort sem það er í vatni eða rafmagni og skapa sér nýja stöðu þar eða í smásölu eða heildsölu. Við teljum að nú sé áhugaverður tímapunktur fyrir nýja aðila að gefa sig fram sem hafa metnað til þess að fara áfram með fyrirtækið.“

Þetta sagði Ólafur Ólafsson, sem þá var stjórnarformaður Olíufélagsins. Ég hef fylgst svolítið með fjárfestingum hans og ýmissa annarra sem tengst hafa einkavæðingu Framsóknarflokksins og séð hvernig gullið hefur hlaðist upp. Mig langar að lesa aðeins úr Morgunblaðsfréttum frá árinu 2005. Þann 17. mars segir, með leyfi forseta:

„Kjalar ehf., félag í aðaleigu Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, hefur eignast 55,7% hlut í Keri hf., sem er aðaleigandi Olíufélagsins hf. Félagið átti áður 41% í Keri …“

Þann 14. júní í Morgunblaðinu segir síðan, með leyfi forseta:

„Kjalar ehf. hefur í dag keypt hlutabréf í Eglu hf. að nafnverði kr. 2.562.043 eða 23,12% eignarhlut í félaginu. Kaupverð hlutanna var kr. 5.501.000.000. Eigendur Eglu hf. eftir viðskiptin eru Ker hf. 68,04%; Kjalar ehf., 27,93%; og Fjárfestingarfélagið Grettir hf., 4,03%.“

Í Morgunblaðinu 2. nóvember segir, með leyfi forseta:

„Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur selt alla eignarhluti sína í Keri hf. og Eglu hf. Um er að ræða liðlega 34% hlut í Keri hf. og rúmlega 4% hlut í Eglu hf.

Kaupandi að hlut Straums-Burðaráss í Keri er félagið sjálft, en kaupin eru liðir í lækkun hlutafjár. Söluverð er trúnaðarmál … Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur jafnframt selt alla eignarhluti sína í Eglu hf. til félagsins sjálfs … Eftir viðskiptin á Kjalar ehf., félag í aðaleigu Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, nærri 87% hlut í Keri. … Helstu eignir Kers hf. eru Olíufélagið ehf. og stórir hlutir í Samskipum hf., SÍF hf. og Iceland Seafood International ehf. Þá á Ker 68% hlut í Eglu hf. sem er eignarhaldsfélag um 10,88% hlut í Kaupþingi banka hf. Kjalar ehf., félag Ólafs Ólafssonar, á nærri 28% hlut í Eglu.

Jafnframt á Ker um 56% hlut í fasteignafélaginu Festingu ehf. sem varð til árið 2003, við skiptingu Kers, þegar fasteignir Olíufélagsins voru færðar yfir til Festingar og síðar sömuleiðis fasteignir Samskipa og eignir frá Sundi. Festing hefur nú keypt alla hluti Sunds ehf. og J&K eignarhaldsfélags ehf. í Festingu, rúmlega 19% hlutafjár, ásamt því sem félagið hefur leyst til sín hluti Angusar ehf. í sjálfu sér. Kaupverðið er trúnaðarmál.“

Hvað erum við að tala um hér? Við erum að tala um að einstaklingar greiða út fimm og hálfan milljarð kr. Það kostar töluverða vinnu að ná í slíka peninga. Þetta er veruleikinn sem menn hafa skapað á Íslandi. Í skjóli einkavæðingar ríkisstjórnarinnar á undanförnum árum hafa einstaklingar og hópar einstaklinga safnað saman auði og völdum. Þess vegna spyr ég, þegar við erum að stíga skref sem gætu fært þessar stóru, verðmætu sameignir þjóðarinnar út á markaðstorgið, hvort menn hafi hugsað alveg til enda hvert ferðinni er heitið. Ég bara spyr.

Ég veit það ósköp vel að það er gert af góðum hug þegar menn horfa til lífeyrissjóðanna. Þá hugsa menn sem svo að þar sé samfélagslega ábyrgt afl, þetta er sameign þorra þjóðarinnar sem hún vilji fara vel með. En þannig er þessu ekki farið. Lífeyrissjóðirnir hugsa á nákvæmlega sama veg, því miður segi ég, og hörðustu fjárfestar á markaði.

Ætlum við virkilega að taka raforkugeirann, vatnið og aðra þætti almannaþjónustunnar og hrinda út á markaðstorgið þannig að einstaklingar, eins og sá sem ég vísaði til hér geti haft þjónustuna að féþúfu? Þetta eru staðreyndir lífsins. Ég vísa í tölur og staðreyndir sem einkenna orðið íslenskt samfélag. Það eru fjármálamenn sem ráða orðið lögum og lofum. Síðan búum við við ríkisstjórn sem ætlar að halda áfram á þessari braut. Hún er nú að taka hinn verðmæta raforkugeira, rífa hann frá þjóðinni og henda út á markaðstorgið. Finnst mönnum þetta saklaust? Þurfa stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar sem standa fyrir þessu ekki að gera betur grein fyrir máli sínu?

Ég ætla að hlusta á hvað hæstv. iðnaðarráðherra hefur til málanna að leggja, hvernig hann svarar þessum spurningum mínum og ekki síður, hvað hv. þm. Hjálmar Árnason hefur til málanna að leggja. Ég hef trú á að hann sé næstur á mælendaskrá.