133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[19:39]
Hlusta

Hjálmar Árnason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ekki hvarflar að mér eitt augnablik að hvorki ég né Framsóknarflokkurinn munum stoppa umræður hv. þm. Ögmundar Jónassonar. Ég fagna því hins vegar að hann skuli vera farinn að draga í land með þær alvarlegu ásakanir sem hann viðhafði hér gagnvart hæstv. iðnaðarráðherra.

Ég vek líka athygli hans á því, og endurtek það enn og aftur, að það er ástæða til þess þegar er verið að fjalla hér um frumvörp að hv. þingmaður hlusti á og lesi greinargerðina sem hæstv. iðnaðarráðherra, sá sem stendur að þessu frumvarpi, flytur með frumvarpinu. Það er stefnuyfirlýsingin, það er stefnan, það er þangað sem menn ætla sér. Hvað gerðist í fortíðinni, hvað aðrir hafa komið með, hvers lags yfirlýsingar aðrir hafa komið með kemur þessu máli ekki við. Núverandi hæstv. iðnaðarráðherra ber ábyrgð á þessu máli og hann er maður til að standa undir því. Það er það sem hv. þingmaður ætti að hlusta á og það sem hv. þingmaður ætti að einblína á.

Hvað varðar það sem hv. þingmaður kemur inn á um sölu bankanna þá skil ég ekki hvers vegna verið er að draga það inn í umræðu um þetta mál, af því að það snýst ekki um sölu. Þetta frumvarp snýst ekki um einkavæðingu frá ríki, það snýst um samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga, það snýst um ríkisvæðingu. En af því að hv. þingmanni eru bankarnir svona hugleiknir vekur það athygli mína að hann tilnefnir ávallt nokkra einstaklinga en gleymir því m.a. að þegar Búnaðarbankinn var seldur keyptu hann um 90 þúsund manns, það voru um 90 þúsund manns sem högnuðust á því. Hann gleymir því eflaust að KB-banki, sem er orðinn einn af stærri bönkum á Norðurlöndum og einn af stærri bönkum í Evrópu, hefur fært þúsundum einstaklinga verulegan hagnað. Hann veitir hundruðum ef ekki þúsundum einstaklinga störf, velmenntuðum einstaklingum, ekki síst íslenskum einstaklingum í góðri útrás. Hv. þingmanni finnst það ugglaust bölvað að bankinn skuli vel rekinn, skuli skapa mörg störf og færa þúsundum eigenda sinna ágætar tekjur.