Landsvirkjun.
Frú forseti. Ekki efa ég að efasemdir hv. þingmanns muni haldast enn um hríð.
Ég vildi að rétt væri hjá hv. þingmanni að allar þær þúsundir einstaklinga sem eiga í og starfa í kringum KB-banka væru allt saman framsóknarmenn, eins og hann hefur gefið í skyn, en grun hef ég um, illu heilli, að svo sé ekki. Ég held að eigendur KB-banka sé fólk úr öllum stjórnmálaflokkum, kannski ekki Vinstri grænum, ég veit það ekki, þó er ég viss um að einhverjir vinstri grænir eiga hlut þar í, enda voru það starfsmennirnir sem áttu þess kost að kaupa í Búnaðarbankanum þegar hann var seldur og þeir gerðu það.
En enn og aftur kemur hv. þingmaður upp í umræðu um samkomulag sem gert er á milli ríkisins og tveggja sveitarfélaga og talar um einkavæðingu og aftur einkavæðingu. Það minnir óneitanlega á heldur ógeðfelldar aðferðir sem notaðar voru um miðbik síðustu aldar einmitt til að hamra á og telja fólki trú um annað en veruleikinn sagði.
Það vekur líka athygli mína að hv. þingmaður skuli koma ítrekað upp í ræðustól og víkja sér undan því að vitna í framsöguræðu hæstv. iðnaðarráðherra, sem er þó framsöguræða með því frumvarpi sem hér er til umræðu en ekki um þau frumvörp sem flutt hafa verið í sögu Alþingis. Það frumvarp er til umræðu og það er frumvarpið sem hæstv. núverandi iðnaðarráðherra er að fjalla um og við erum að fjalla um, aðrir en hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar.