133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

breyting á lögum á orkusviði.

365. mál
[20:50]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er vissulega ánægjulegt að verða var við að hv. þingmaður leggi svona mikla áherslu á hagsmuni þessa hlutafélags fyrir norðan, en ég endurtek það sem ég sagði að það nýtur að sjálfsögðu jafnræðisréttar og erindi þess verða tekin til afgreiðslu eins og annarra. En ég fagna því að hér kemur fram annað sjónarmið til einkaréttarlegs fyrirtækis, þ.e. hlutafélagsins Norðurorku.