133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

breyting á lögum á orkusviði.

365. mál
[21:46]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að hæstv. iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins ætti að hlusta á samþingmann sinn Kristin H. Gunnarsson, (Gripið fram í: … samflokksmann.) samflokksmann, já, sem hefur bent á að forusta Framsóknarflokksins sé búin að yfirgefa í rauninni flokkinn og hinn almenna flokksmann, samvinnuhugsjónina og þau sjónarmið sem flokkurinn stóð fyrir. Af því að ég hef á vissan hátt taugar til Framsóknarflokksins, þá verð ég að segja þetta.

En að koma fram og reyna að fela einkavæðingaráformin sem eru í frumvarpinu í einhverjum rykmekki, finnst mér ekki vera frambærilegt í sjálfu sér, og engan veginn. Menn eiga að standa við það sem þeir segja og meina en ekki að reyna að komast hjá því.

Ég spurði hæstv. ráðherra um nokkur atriði. Ég spurði um virkjanirnar sem eru taldar upp í lögunum um Landsvirkjun sem hluta af eignum fyrirtækisins, en eru ekki nefnd á nafn og meira að segja kveðið svo á um að bæði 6. gr., sem lýtur að upptalningu á virkjunum, og 2. gr., sem lýtur að Laxárvirkjun, eru felldar á brott.

Ég spyr: Er það til að geta selt einstakar virkjanir án þess að breyta lögunum, einfaldlega í gegnum þetta nýja eigendaform? Eins og lögin eru núna er það ekki hægt. En með breyttum lögum er það hægt. Er það markmiðið? Er það þess (Forseti hringir.) vegna sem verið er að fella niður upptalningu á þessum virkjunum?