133. löggjafarþing — 31. fundur,  21. nóv. 2006.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

359. mál
[17:37]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekkert að útiloka að vetni verði notað til framtíðar sem rafgeymir eða orkugeymir. En ég er að benda á að eitthvað allt annað gæti orðið ofan á. Eins og hv. þingmaður nefndi þá eru bílaframleiðendur að athuga efnarafala og vetni. Það er tvennt. Það eru til ýmsar leiðir. En það er von að Íslensk NýOrka kynnist ekki öðru en því sem snýst um vetni því að þeir hafa sérhæft sig í því og það getur vel verið að það verði ofan (Gripið fram í.) á.

Menn eru að leita að orkugeymslu alls staðar um heiminn sem er með miklu betri nýtni en einhver 70%. Það þarf að vera helst 90%.