afnám verðtryggingar lána.
Frú forseti. Greinargerðin hefst þannig, með leyfi forseta:
„Á Íslandi búa lántakendur húsnæðislána jafnan við hæstu vexti í Evrópu og þar að auki eru lánin verðtryggð hérlendis.“
Aðalmarkmiðið er sagt vera að gæta hagsmuna skuldara að því að sagt er. Svo er ekki, eins og ég nefndi með dæmum. Það er ekki verið að gæta hagsmuna skuldara, verðtryggingin gætir einmitt hagsmuna skuldara.
Það fer vissulega fram sparnaður í öðrum löndum. Íslendingar hafa þurft að byggja mjög mikið upp, þeir bjuggu líka við neikvæða vexti í 30–40 ár sem kenndi þjóðinni að skulda. Í áratugi borgaði sig að skulda. Menn eru enn ekki búnir að læra að spara og þvingaður sparnaður í lífeyrissjóðunum verður til þess að menn telja sig ekki þurfa að spara eins mikið af því að þeir eigi fyrir ellinni og þurfi ekki að óttast að verða illa settir í ellinni. Sparnaðarvilji Íslendinga er þess vegna því miður enn þá allt of lágur og ég held að afnám verðtryggingarinnar yrði ekki til að bæta það, ég er alveg sannfærður um það. Ef menn eiga á hættu að tapa sparifé sínu vegna verðbólgu er ég ekki viss um að menn verði fúsari til að spara frekar en nú.
Svo vil ég benda á að því miður skulda Íslendingar alveg gífurlegar fjárhæðir í yfirdrætti með 20–25% nafnvöxtum, sem eru alveg gífurlegir vextir, sem sýnir að Íslendingar eru ekkert voðalega næmir fyrir vöxtum.
Þess vegna held ég að það sé ekkert mjög skynsamlegt að hverfa frá þeirri verðtryggingu sem hefur verið við lýði og hefur gætt hagsmuna lífeyrissjóðanna og þeirra Íslendinga sem eru sparifjáreigendur.