133. löggjafarþing — 31. fundur,  21. nóv. 2006.

samkeppnislög.

11. mál
[18:58]
Hlusta

Flm. (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005. Ásamt mér eru flutningsmenn hv. þm. Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Örlygsson, Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Hjörleifsson og Kjartan Ólafsson.

Í sjálfu sér er ekki um mjög flókið mál að ræða heldur varðar það leiðréttingu á viðmiðunarfjárhæðum eins og þær eru í samkeppnislögunum. En samkvæmt 2. mgr. 17. gr. samkeppnislaga er skylt að tilkynna samruna til Samkeppniseftirlitsins sé sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja sem eru að sameinast 1 milljarður kr. eða meira og ársvelta a.m.k. tveggja þeirra fyrirtækja sem aðild eiga að samruna yfir 50 millj. kr.

Þetta frumvarp gengur út á að báðar þessar viðmiðunarfjárhæðir séu of lágar. Þær eru að mati flutningsmanna of lágar. Í frumvarpinu er því lagt til að veltuviðmið varðandi samruna fyrirtækja verði hækkuð verulega.

Eins og menn þekkja hafa umsvif fyrirtækja á Íslandi aukist umtalsvert undanfarin ár. Þeim fyrirtækjum sem falla undir viðmið 17. gr. samkeppnislaganna hefur því fjölgað stórlega. Af þeirri ástæðu er ljóst að líkurnar aukast á að samruni verði í viðskiptalífinu þar sem tilkynningarskylda er til staðar. Slíkum samruna hefur fjölgað. Frumvarpið fjallar um að það liggi í augum uppi að uppfæra þurfi þessar fjárhæðir í takt við þá þróun sem orðið hefur í viðskiptalífinu.

Í greinargerð með þessu frumvarpi er jafnframt bent á að viðmiðunarfjárhæðir samkeppnislaga í nágrannaþjóðum okkar séu allt aðrar og miklu hærri. Benda má á, eins og gert er í greinargerðinni, að í Danmörku er t.d. miðað við að heildarvelta samrunafyrirtækjanna jafngildi um 44 milljörðum kr. en velta að minnsta kosti tveggja fyrirtækja sem aðild eiga að samrunanum nemi 3,5 milljörðum. Í Finnlandi er viðmiðið fyrir heildarveltu að jafngildi um 30 milljarðar kr. og velta tveggja fyrirtækja sem aðild eiga að samrunanum 1,7 milljarðar kr. Í Svíþjóð eru sambærilega tölur 38 milljarðar annars vegar og 1 milljarður hins vegar. Eins og áður hefur komið fram eru fjárhæðirnar á Íslandi 1 milljarðs heildarvelta og hins vegar 50 millj. kr.

Hafa ber í huga að tilkynningarskylda um samruna er ekki léttvæg krafa sem sjálfsagt og eðlilegt er að gera vegna þess hve lítil byrði slík krafa er. Það er ekki þannig. Þetta er töluvert íþyngjandi krafa. Það þarf m.a. að upplýsa um aðdraganda samruna, veltu félaganna sem aðild eiga að samruna, eignarhald, fjárhagsleg tengsl og, það sem kannski getur verið flóknast og mesta vinnu þarf að leggja í, að skilgreina þá markaði sem samruninn hefur áhrif á. Þetta kallar að jafnaði á aðstoð lögfræðinga og eftir atvikum endurskoðenda og að mati þeirra sem leggja málið hér fyrir þingið eru óþarflega ríkar kröfur um tilkynningarskyldu líklegar til þess að valda ástæðulausu álagi á Samkeppniseftirlitið.

Á þinginu höfum við gjarnan talað um að grípa þurfi til aðgerða til að auka málsmeðferðarhraða og tryggja að eftirlitsstofnanir okkar, m.a. þær sem fylgjast með því sem gerist á viðskiptasviðinu, hafi svigrúm og tækifæri til að sinna þeim málum sem raunverulega skipta máli en eyði ekki öllum kröftum sínum í léttvægari mál. Með því að hækka viðmiðunarmörkin er tryggt að eingöngu mál þar sem raunverulegir hagsmunir eru í húfi, og ástæða til að ætla að kaup eða samruni fyrirtækis geti skipt máli varðandi samkeppni, komi til kasta Samkeppniseftirlitsins.

Atvinnulífið hefur hvatt til þess að viðmiðin verði hækkuð, sem þarf ekki í sjálfu sér að koma á óvart. Meðal þeirra sem telja nauðsynlegt að hækka viðmiðunarmörk 2. mgr. 17. gr. má nefna Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands. Raunar hafa Samtök atvinnulífsins bent á að ákjósanlegast væri að fella niður ákvæði laganna um bann við samruna og koma í veg fyrir misnotkun ráðandi aðila á markaði með ströngu og virku aðhaldi Samkeppniseftirlitsins gagnvart fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu. Þá hefur einnig verið bent á að óheppilegt sé að viðmiðunarmörk sem þessi séu bundin í lög frekar en t.d. í reglugerð þar sem nauðsynlegt sé að endurskoða veltumörkin reglulega í takt við það sem ég hef áður getið. En það hefur ekki verið gert frá því að ákvæðið var lögtekið. Svo langt verður hins vegar ekki gengið með þessu þingmáli heldur staðnæmst við þá breytingu að þröskuldur fyrir afskipti samkeppnisyfirvalda verði hækkaður, eitthvað í átt að því sem eðlilegt gæti talist.

Með hliðsjón framansögðu er ljóst að varlega er af stað farið með þeirri lagabreytingu sem hér er lögð til. Ég vek athygli á því að við erum enn þá að tala um fjárhæðir sem eru langt frá þeim fjárhæðum sem við þekkjum hjá nágrannalöndunum en ég fór yfir þær.

Ég vil að lokum geta þess að ég tel að of strangar kröfur í þessu efni, of lág viðmið, geti beinlínis orðið til þess að lögin verði sniðgengin í stórum stíl. Hvers vegna ættu menn að gera ráð fyrir því, hjá fyrirtæki sem veltir rétt um milljarði, að þegar viðkomandi fyrirtæki kaupir og hyggst sameinast fyrirtæki þar sem starfa t.d. fjórir starfsmenn, að slíkt sé tilkynningarskylt til Samkeppniseftirlitsins? Það er nefnilega alveg fullkomlega raunhæft dæmi, að fyrirtæki sem veltir 50 millj. kr. hafi ekki nema um fjóra starfsmenn í vinnu. Hvers vegna í ósköpunum ættu menn að gera ráð fyrir því að slíkur samruni sé tilkynningarskyldur út frá almennri skynsemi? Ég hygg að það sé að gerast í stórum stíl úti í atvinnulífinu að uppkaup á fyrirtækjum sem samkvæmt veltuviðmiðum samkeppnislaganna eru tilkynningarskyld til Samkeppniseftirlitsins séu ekki tilkynnt.

Ég hef jafnframt orðið var við það hjá fjölmörgum aðilum, þegar vakin er athygli á þeim reglum sem um þetta efni gilda, að menn rekur í rogastans. Þetta hef ég heyrt bæði frá þátttakendum í atvinnulífinu auk þess sem ég hef reynslu af því úr störfum mínum sem lögmaður og af samtölum mínum við lögmenn sem starfa á þessu sviði. Þessar reglur þykja allt of strangar. Ég ítreka það sem ég sagði áðan. Það er ekki lagt til að reglan verði felld brott úr lögunum heldur einungis að við færum upp viðmiðunarfjárhæðirnar í átt að því sem við getum sagt að sé hóflegt í þessu efni.