133. löggjafarþing — 31. fundur,  21. nóv. 2006.

samkeppnislög.

11. mál
[19:08]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum um frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum hvað varðar lágmark sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að þurfa ekki að tilkynna sameiningu til Samkeppnisstofnunar.

Þessi mörk voru sett of lágt í byrjun. Ég nefndi það á sínum tíma. Þau eru núna 1 milljarður í veltu og 50 millj. kr. hjá öðru fyrirtækinu. En sambærilegar tölur erlendis eru 30–44 milljarðar við sameiginlega veltu og 1 milljarður í tekjur.

Frumvarpið gengur að því leyti of skammt að mínu mati að þessi mörk eru hækkuð of lítið. Það er gert ráð fyrir 4. milljörðum og 300 millj. kr. Ég vildi gjarnan, þegar hv. efnahags- og viðskiptanefnd fjallar um þetta mál, skoða það í samráði við Samkeppniseftirlitið að mörkin verði hækkuð enn frekar.

Of lág mörk gera að verkum að Samkeppniseftirlitið fær allt of mikið af ómerkilegum málum að fjalla um og getur þar af leiðandi ekki einbeitt sér að þeim málum sem virkilega skipta máli, þ.e. samruna stórra fyrirtækja sem ætti virkilega að skipta máli. Þetta er þekkt. Menn drekkja eftirlitsstofnunum í óþarfa handavinnu og þá vilja alvörumálin oft sleppa í gegn. Það er því ekki til bóta að hafa mörkin svona lág.

Eins og hv. framsögumaður málsins nefndi er ákveðin hætta fólgin í því að tilkynna samruna. Hann nefndi reyndar ekki þá hættu sem mest er, að vinnslan tekur langan tíma. Ég held að ferlið taki einar sex eða átta vikur að lágmarki frá því að menn tilkynna samrunann, frá því að hann er orðinn opinber þar til Samkeppniseftirlitið gefur grænt ljós kemur á samrunann. Allan þann tíma eru lykilstarfsmenn beggja fyrirtækja eða fleiri fyrirtækja í lausu lofti hvað varðar framtíð sína. Það er þekkt fyrirbæri að þegar slík staða kemur upp vill oft verða mikið los á mannskap og besta fólkið fer þá oft að leita sér að annarri vinnu.

Oft og tíðum getur tilkynningarskyldan valdið því að fyrirtæki missi lykilstarfsmenn sína. Það er ekki æskilegt. Þess vegna eru menn mjög ragir við að fara í svona tilkynningu og ferlið sem því fylgir. Það er hættulegt fyrir fyrirtækin.

Ég held að það séu mörg rök fyrir því að hafa þessi mörk töluvert hærri, jafnvel enn hærri en frumvarpið gerir ráð fyrir þannig að Samkeppniseftirlitið fái þau mál til skoðunar sem skipta máli en sé ekki ónáðað með alls konar smámálum. Eins munu fyrirtækin vita að þau eigi að tilkynna það þannig að það gleymist ekki eða menn viti það ekki. Ferlið má ekki fæla menn frá því að sameina fyrirtæki, sem oft er efnahagslega hagkvæmt, vegna þess að reglurnar gera það að verkum að þeir lenda í biðstöðu, limbói, sem gerir að verkum að þeir eiga á hættu að missa bestu starfsmenn sína.