samkeppnislög.
Virðulegi forseti. Ég vil í tilefni af því sem hv. þm. Pétur H. Blöndal vék að, varðandi mögulega vinnu við frumvarpið í nefnd, ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég tel að frumvarpið stilli fram mjög hóflegum hugmyndum um veltuviðmið. Ég get vel fallist á þau sjónarmið sem hann tefldi fram, að hugsanlega ætti að ganga lengra. Sú grunnhugsun lá viðmiðunarfjárhæðunum til grundvallar að hér væri teflt fram upphæðum sem ættu að geta verið óumdeild breyting. Ég get fyrir mitt leyti sagt að ég mundi engar athugasemdir gera við að gengið yrði lengra. Mér þætti eðlilegt að það yrði tekið til skoðunar í nefnd. Ég geri engar athugasemdir við það fyrir mitt leyti.
Það er jafnframt rétt sem kom fram hjá hv. þingmanni að öll óvissa í tengslum við samrunaferli getur verið skaðleg, ekki bara fyrir fyrirtækin og viðskiptavini fyrirtækjanna, heldur líka starfsfólkið. Ég hygg að reglan sé sú að Samkeppniseftirlitið hafi 30 daga frá því tilkynning berst um samruna til að taka afstöðu til þess hvort það vilji taka málið til frekari skoðunar. Berist tilkynning ekki frá Samkeppniseftirlitinu innan 30 daganna mun samruninn ganga eftir.
En út af því mikla álagi sem er á Samkeppniseftirlitinu getur það ekki á þessum 30 daga fresti tekið málin til neinnar skoðunar af viti. Því er athugandi hvort ástæða sé til að skoða málið frekar. Það er því nánast viðtekin venja hjá eftirlitinu að tilkynna alltaf að það hyggist ætla að taka mál til skoðunar, bara til að koma í veg fyrir að 30 daga fresturinn renni út. Það segir sína sögu um í hvaða farvegi málin eru að eftirlitið notar í stórum stíl 30 daga regluna til að tryggja sér viðbótarfrest svo taka megi málin til alvarlegrar skoðunar.
Ég þekki engin sérstök dæmi um að mál dragist stórkostlega umfram 30 dagana. En það eru þekkt dæmi um að menn hafi fengið óbein skilaboð, eftir að hafa fengið tilkynningu um að eftirlitið ætli að taka málið til skoðunar, um að menn vildu vinna sér tíma til að skoða málið frekar. Og fjölmörg dæmi eru um að í framhaldinu hafi verið tilkynnt að ekkert verði aðhafst.
Öll hníga þessi atriði í sömu átt. Það er skynsamlegt að breyta þessu viðmiðum. Við eigum ekki að láta sjálfsögð mál eins og þetta daga uppi í þinginu trekk í trekk heldur ganga hreint til verk. Ég tel að náðst geti breið samstaða um þetta. Atvinnulífið kallar klárlega eftir slíkri breytingu. Ég hygg að þingmenn geti verið sammála um að rétt sé að breyta þessum viðmiðunarmörkum og geri ekki ráð fyrir að í þingnefnd komi fram hávær mótmæli við því. Ég vonast til þess að málið fái góðan framgang á þinginu.