133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.

153. mál
[12:49]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Það er nú annað hvort að þingmenn sýni því áhuga þegar hillir undir að stærsti þjóðgarður í Evrópu verði að veruleika, og það hjá okkur á hálendi Íslands, á Vatnajökli og í kringum hann.

Örfá orð varðandi það sem hæstv. ráðherra kemur inn á, að það sé auðvitað meira en að segja það að stofna þjóðgarð. Við höfum ýmsa fjöruna sopið í þeim efnum á Íslandi og höfum ekki alltaf borið gæfu til þess að hlutirnir séu gerðir með þeim hætti að um þá ríki sátt, þ.e. þá á milli okkar, löggjafans, og heimamanna eða stofnana hins opinbera og heimamanna. Ég styð það og finnst sjálfsagt að búið verði til þjónustunet af því tagi sem hæstv. ráðherra getur um í ræðu sinni en ég hvet jafnframt til þess að við stofnum Þjóðgarðastofnun Íslands, öfluga stofnun sem hafi það að meginmarkmiði að annast grundvallarþætti stjórnsýslu þjóðgarðanna á Íslandi.