133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

kjör framkvæmdastjóra norrænu ráðherranefndarinnar.

305. mál
[13:19]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Magnús Þór Hafsteinsson) (Fl):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það var nokkurn veginn á þá leið sem ég bjóst fyrir fram við að yrði.

Hv. þm. Dagný Jónsdóttir skammar mig fyrir það að gera lítið úr þeim sem fékk þessa stöðu. Fyrst hún er að skamma mig, hv. þingmaðurinn, held ég að hún ætti líka að skamma til að mynda finnska þingmenn sem gagnrýndu þessa ráðningu mjög harkalega á sínum tíma. Til að mynda sagði einn þingmaður í viðtali við Fréttablaðið að „við lifum á árinu 2006 og ekkert norrænt land á að hafa rétt til að halda frambjóðendum leyndum“. Þegar maður skoðar í samhengi allar fréttir af þessu máli er einmitt ekki annað að sjá en að hér hafi verið á ferðinni ansi umsvifamikið baktjaldamakk.

Hæstv. ráðherra sagði að fyrst hefði verið tilkynnt um þetta á fundi í byrjun september, hafi ég tekið rétt eftir. Þrátt fyrir það er eins og að formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs hafi ekki haft hugmynd um þetta mál fyrr en kannski alveg á síðustu metrunum. Það er heldur ekki að sjá neins staðar að neinn innan Norðurlandaráðs hafi heldur vitað af þessu fyrr en alveg undir lokin. Ef þetta er ekki baktjaldamakk, allt þetta púsluspil, þegar maður leggur það saman og fer að skoða það í samhengi veit ég ekki hvað á að kalla baktjaldamakk.

Ég ætla í sjálfu sér ekki að leggja dóm á það hvort réttur maður hafi fengið þessa stöðu eða ekki. Ég hlýt hins vegar að lýsa miklum efasemdum við að stjórnmálamenn sem hafa gert jafnhroðaleg mistök á alþjóðavettvangi og hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson gerði þegar hann tók þátt í því að setja Ísland á lista hinna svokölluðu viljugu þjóða í Íraksstríðinu eigi í sjálfu sér erindi út fyrir landsteinana.