mislæg gatnamót á mótum Þingvallavegar og Vesturlandsvegar.
Virðulegi forseti. Menn velta fyrir sér í þessari umræðu hvort eðlilegt sé að fjalla um svo litla framkvæmd sem eitt hringtorg, hvort ekki sé nauðsynlegt að leggja á ráðin um stærri áform. Ég get tekið undir það enda er samgönguáætlun stórt viðfangsefni og umfangsmikið. Engu að síður þurfa hin litlu verkefni líka að vera á dagskrá og það þarf að fjalla um þau, ekki síst ef það er til þess að bæta umferðaröryggi.
Hins vegar veit ég ekki hvaða upplýsingaþjónustu hv. þm. Sigurjón Þórðarson hefur heimsótt á þessum degi. Ef hann færi yfir það í hverju er verið að vinna í okkar kjördæmi … (SigurjÞ: Það er viðhald á vegum.) Við vorum að tala um framkvæmdir. Hv. þingmaður kallar fram í að hann eigi við viðhald. Ég veit ekki hvaða viðhald hann er að tala um, hvort það … (Gripið fram í.) Það er eitthvert mjög dularfullt viðhald. Hvað um það, þær tölur sem hann nefndi í þessu samhengi, framkvæmdir við samgöngumál, eru ekki í nokkru samræmi við veruleikann. Við erum að tvöfalda Reykjanesbrautina, það hefur orðið vart við það. Það er verið að vinna við tvöföldunina á Suðurnesjunum, í Garðabæ og Kópavogi, þar streyma stórar fjárhæðir í gegn, mörg hundruð milljónir. Það er unnið í kjördæmi okkar þingmannsins, Norðvesturkjördæmi, og þar eru boðin út verk í stórum stíl. Ég er ansi hræddur um að það verði að kanna þessa upplýsingaþjónustu sem vitnað var til. Traustustu heimildirnar eru náttúrlega fjárlög og samgönguáætlunin (Forseti hringir.) og ég held að þingmaðurinn ætti að halda sig við þær.