133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

Suðurlandsvegur.

137. mál
[13:47]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S):

Herra forseti. Við nutum þess, þingmenn Suðurkjördæmis, að fá heimsókn úr Árnesþingi til okkar þar sem ýmis mál voru rædd og m.a. samgöngumál. Þá kom fram hjá einum af okkar ágætu héraðshöfðingjum að menn rifust ekki eða deildu um einbreiðar brýr eða sjúkrahúsbyggingar og ástæðan væri sú að menn væru yfirleitt hræddir við slík mannvirki. Þannig er það með Suðurlandsveginn. Menn ræða ekki og rífast um hann, menn eru einhuga um hann vegna þess að menn óttast þessa leið og þann veg sem nú er og því er einhugur á Suðurlandi um það að brýnasta verkefnið í samgöngumálum sé að tvöfalda leiðina frá Rauðavatni og austur fyrir Selfoss. Allar tölur, umferðartölur sem fyrir liggja, sýna að það er mun meiri umferð á þessum vegi nú en var þegar sú ákvörðun var tekin á Alþingi að tvöfalda Reykjanesbrautina. (Forseti hringir.) Þess vegna er augljóst að framkvæmdin er þörf.