Suðurlandsvegur.
Hæstv. forseti. Hvort það er nærvera góðra sunnlenskra gesta hér uppi á pöllum eða sú staðreynd að kosningar eru fram undan eða þá fagleg efnisleg rök, þá hefur skapast mjög þverpólitísk samstaða meðal þingmanna Suðurkjördæmis og ég held almennt íbúa þess kjördæmis um nauðsyn þess að tvöfalda Suðurlandsveg og það hið bráðasta. Ég vil nota þetta tækifæri og fagna þeirri yfirlýsingu sem hæstv. ráðherra gaf hér. Ég skil hann ekki öðruvísi en svo en hann sé einmitt opinn fyrir því að svara þeirri þverpólitísku samstöðu sem hefur skapast og þegar þverpólitísk samstaða skapast þá næst líka árangur. Þess vegna fagna ég þeirri yfirlýsingu sem hæstv. ráðherra gaf, hvort heldur það verður gert með hefðbundnum hætti eða einkaleiðin svokallaða farin má einu gilda, bara að farið verði fljótlega og sem allra fyrst út í þá mikilvægu framkvæmd sem tvöföldun Suðurlandsvegar er. Þess vegna fagna ég yfirlýsingu hæstv. ráðherra.