133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

Suðurlandsvegur.

137. mál
[13:57]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegi forseti. Þegar þingsályktunartillaga þeirra samfylkingarmanna og Magnúsar Þórs Hafsteinssonar var lögð fram hafði Alþingi þegar samþykkt sérstaka þingsályktun um vegamál. Það væri því algert einsdæmi ef síðan hefði verið brotið upp það lagaumhverfi sem gerir ráð fyrir að Alþingi fjalli um samgönguáætlun og tekinn út einn ákveðinn kafli á vegakerfinu og ályktað alveg sérstaklega um hann. Þetta er náttúrlega svo augljós sýndarmennska sem gengur gegn lögum að það er ekki hægt að ræða frekar um það.

Hvað varðar Suðurlandsveginn þá hef ég marglýst því yfir að ég telji að þessar æðar út frá höfuðborginni, Reykjanesbraut, Suðurlandsvegur — alla leið austur að Þjórsá nefndi ég einu sinni, ég tel að þetta eigi við alla leið að Markarfljóti með tilkomu Bakkafjöruhafnar — og Vesturlandsvegur upp í Borgarnes eigi að vera tvíbreiðir vegir, 2+2. Ég hef marglýst þessu yfir. Svo koma þingmenn upp, eins og Björgvin G. Sigurðsson, trekk í trekk og halda því fram að samgönguráðherra sé einhver þröskuldur í þessu máli. Þetta er ekki málflutningur sem ég get metið að verðleikum. Minn vilji stendur alveg klár. Hins vegar er það deginum ljósara að við gerum ekki alla hluti strax á morgun. Þess vegna erum við að fjalla um fjárlög, þess vegna erum við að fjalla um samgönguáætlun, gera áætlun um að gera þetta í ár, annað næsta ár og svo koll af kolli. (Gripið fram í.) Vegirnir og vegakerfið á Íslandi var ekki byggt upp á einni nóttu. Þess vegna þurfum við að vanda okkur (Forseti hringir.) og vinna af sanngirni og öryggi og ég er alveg sannfærður um að um það verður sátt í þinginu þegar búið er að skýra þetta út fyrir Samfylkingunni.