133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

hjólreiðabrautir.

379. mál
[14:06]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil meina að hæstv. samgönguráðherra hafi verið að gefa hér tímamótayfirlýsingu og vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrirspurnina og benda henni á að það liggur einmitt fyrir þinginu þingsályktunartillaga sem flutt hefur verið í fjögur ár í röð þar sem við þingmenn úr öllum flokkum höfum verið að hamra þetta járn og reyna að fá hæstv. samgönguráðherra til að átta sig á því hversu mikilvægt það er að leggja hjólreiðabrautir af því tagi sem hv. þingmaður talar fyrir og sem kveðið er á um í þingsályktunartillögu okkar. Við höfum hins vegar ekki haft erindi sem erfiði með að koma tillögu okkar í gegnum þingið en nú fjölgar greinilega þeim þingmönnum innan Sjálfstæðisflokksins sem ætla að leggjast á sveifina og ég er afar glöð að sjá það og heyra og sömuleiðis glöð að heyra að hæstv. ráðherra skuli vera búinn að átta sig á mikilvægi þessa máls og þess sé nú að vænta að gerðar verði (Forseti hringir.) lagabreytingar í þessum efnum.