133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

miðstöð mæðraverndar.

[15:35]
Hlusta

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Miðstöð mæðraverndar hefur starfað við góðan orðstír í sjö ár en hún verður lögð niður á morgun. Hjá Miðstöðinni hafa þungaðar konur sem þurfa meira eftirlit og þjónustu en meðganga alla jafna krefst átt kost á heildstæðri og góðri aðhlynningu og fræðslu, um 700 konur á ári. Þetta eru konur sem glíma við andleg, líkamleg eða félagsleg vandamál sem tengjast meðgöngunni með einhverjum hætti. Í Miðstöð mæðraverndar hefur verið veitt mjög mikilvæg sérhæfð þjónusta, sniðin að þörfum kvennanna og veitt á þeirra forsendum.

Miðstöðin hefur starfað samkvæmt samningi við Landspítala – háskólasjúkrahús. Fyrir nokkru var sú ákvörðun tekin, einhliða að því er virðist af Landspítalanum, að segja samningnum upp og þar með að leggja niður starfsemi Miðstöðvarinnar í sinni mynd. Þetta þýðir röskun á þjónustu við u.þ.b. 200 barnshafandi konur. Helmingur þeirra mun þurfa að leita til LSH og hinar hundrað á heilsugæslustöðvar. Varla þarf að taka fram að í þessu felst að flestar þurfa konurnar að skipta um ljósmæður og lækna og því rofnar samfellan í þjónustu við þennan hóp kvenna.

Líklega liggur ástæða þessara skipulagsbreytinga að einhverju leyti í því að Heilsuverndarstöðin var seld og engin tilraun gerð til þess að ganga til samninga við nýja eigendur um áframhaldandi starfsemi heilsugæslunnar þar. Þess í stað var ráðist í að flytja hana í leiguhúsnæði í Mjóddinni þar sem 150 millj. kr. hefur þurft að verja til þess að breyta keilusal í heilsugæslu. Reyndar er það svo að degi fyrir flutninginn er húsnæðið í Mjóddinni ekki tilbúið vegna þess að þar þurfti að koma upp fullkomnu loftræstikerfi en húsnæðið er með þeim vanköntum að þar er varla hægt að opna glugga.

Forseti. Hver er ástæða riftunar samningsins á milli Miðstöðvar mæðraverndar og LSH? Er það svo að spítalinn eigi erfitt með að manna læknisstöðuna einu sem honum ber að sjá um samkvæmt samningnum við mæðravernd? Gott væri að fá skýr svör við því.

Frá upphafi hefur verið unnið öflugt þróunar- og fræðslustarf í Miðstöð mæðraverndar. Þar hefur sýn heilsugæslunnar verið beitt á meðgöngu og fæðingu, þ.e. sú sýn sem leggur áherslu á fjölskylduna í heild og þau áhrif sem nýtt barn hefur á samsetningu og samskipti í fjölskyldunni.

Meðganga og fæðing er ekki afbrigðilegt ástand heldur eðlilegur gangur lífsins. Á undanförnum 30–40 árum hefur þjónusta við barnshafandi konur hins vegar færst nær algjörlega til sjúkrahúsanna hér á landi og val kvenna um þjónustu við fæðingu er nánast ekki neitt. Í þessu samhengi er líka athyglisvert að hin vinsæla MFS-þjónusta, meðganga, fæðing, sængurlega, sem veitt var á kvennadeild LSH var lögð niður fyrir stuttu, m.a. að sögn vegna þess að spítalinn sæi ekki lengur um meðgönguvernd sem slíka.

Ljósmæðrafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga hafa mótmælt niðurlagningu þjónustumiðstöðvar mæðraverndar og spurt hvers vegna stofna þurfi nýja deild innan LSH fyrir barnshafandi konur í áhættuhópum. Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar benda á að hér sé í raun um að ræða afturför í þjónustunni, afturför um 15–20 ár.

Frú forseti. Ég hef lagt eftirfarandi spurningar fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra:

Hvaða rök lágu að baki því að Landspítali – háskólasjúkrahús rifti samningi við Miðstöð mæðraverndar sem gilda átti til ársins 2009?

Telur ráðherra að Miðstöðin hafi ekki sinnt starfi sínu sem skyldi?

Telur hæstv. ráðherra að nýtt fyrirkomulag tryggi fullnægjandi þjónustu fyrir þungaðar konur í áhættuhópum?

Telur hæstv. ráðherra að meðgöngu- og mæðravernd sé kannski betur komin á Landspítala – háskólasjúkrahúsi en hjá heilsugæslunni þar sem hún þó á að vera lögum samkvæmt?

Ég leyfi mér að bæta við einni spurningu, frú forseti. Mig langar að spyrja eins og yfirljósmóðir og yfirlæknir Miðstöðvarinnar spurðu í Morgunblaðinu í gær:

Höfðu yfirvöld kynnt sér starfsemi Miðstöðvar mæðraverndar til hlítar áður en ákvörðun var tekin um þessar umfangsmiklu skipulagsbreytingar?