Miðstöð mæðraverndar.
Virðulegi forseti. Mæðravernd er í eðli sínu heilsuvernd, og eftirlit með þunguðum konum í eðlilegri meðgöngu á að vera innan heilsugæslunnar. Það hefur verið metið að í 80% tilvika sé meðganga og fæðing eðlileg.
Á Reykjavíkursvæðinu eru 3 þús. konur sem njóta þjónustu mæðraverndar á ári hverju, 600 þeirra þurfa á frekara eftirliti að halda og teljast í áhættumeðgöngu.
Þegar Miðstöð mæðraverndar tók til starfa um mitt ár 2001 voru skjólstæðingar hennar um 1.800 talsins. Þeim hefur fækkað verulega á síðustu árum vegna skipulagsbreytinga þegar mæðravernd kvenna í eðlilegri meðgöngu var færð til heilsugæslustöðva með fjölgun stöðugilda ljósmæðra.
Við þessar breytingar hefur Miðstöð mæðraverndar fyrst og fremst sinnt konum í áhættumeðgöngu auk þess að styðja við mæðravernd innan heilsugæslunnar svo og fræðslu fyrir starfsfólk og verðandi foreldra.
Allir eru sammála um að vel hafi verið staðið að þessum skipulagsbreytingum, þær hafi heppnast vel og leitt til bættrar þjónustu. Allflestar konur í eðlilegri meðgöngu njóta nú mæðraverndar á heilsugæslustöðvum og fá jafnframt ungbarnaeftirlit á sömu stöð. Aukin samfella í þjónustu er betri og persónulegri fyrir fjölskyldur og það er mikilvægt.
Með ákvörðunum um að færa þjónustu við konur í áhættumeðgöngu alfarið til Landspítala – háskólasjúkrahúss er grundvelli kippt undan starfsemi Miðstöðvar mæðraverndar í því formi sem verið hefur. Breytingin er rökstudd með því að þjónusta við konur í áhættumeðgöngu sé einfölduð, það þurfi aðeins að leita á einn stað í stað tveggja áður, en greiningartæki og læknisfræðileg þekking á áhættumeðgöngu er fyrst og fremst staðsett á LSH.
Í sjálfu sér eru þetta fullgild rök fyrir breytingunni þótt líta megi á málið frá fleiri hliðum. Hins vegar hlýt ég að gagnrýna hve skjótt þessa breytingu ber að, hve lítinn tíma bæði barnshafandi konur og starfsfólk fái til að aðlagast þessari breytingu. Þá hlýt ég einnig að gagnrýna ákveðið stefnuleysi í þessum málum því að á stuttum tíma hefur verið lagt í miklar fjárfestingar í breytingar á húsnæði og þjálfun starfsfólks til ákveðinna verkefna sem nú er hætta á að fari í súginn.