133. löggjafarþing — 33. fundur,  22. nóv. 2006.

vísindaveiðar á hval.

283. mál
[18:48]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Herra forseti. Ég ætla að nota þessa mínútu til að gera að umtalsefni hafrannsóknir almennt. Mér finnst vera umhugsunarefni hvernig staðið er að þeim á Íslandi. Mér finnst hæstv. sjávarútvegsráðherra ítrekað reyna að halda aftur af rannsóknum sem geta að einhverju leyti grafið undan kvótakerfinu og hann er eins og hálfgerður kerfisþræll. Það er neitað að horfa á aðra þætti en þá hefðbundnu, t.d. núna hjá Hafró, sem stangast samt algjörlega á við viðtekna vistfræði. Mér finnst það sérstaklega umhugsunarefni vegna þess að hæstv. sjávarútvegsráðherra kemur úr landshluta sem hefur farið gríðarlega illa út úr þessu kerfi. Ég skil í rauninni ekki að hann taki því ekki fagnandi þegar við (Forseti hringir.) bendum honum á að (Forseti hringir.) kerfið stenst ekki neina skoðun.