vísindaveiðar á hval.
Virðulegur forseti. Varðandi vísindaveiðarnar á stórhvelunum hefur í sjálfu sér ekki verið fallið neitt frá þeirri ákvörðun. Á sínum tíma var gerð grein fyrir vísindaprógramminu eins og það var lagt upp og það var farið með það fyrir vísindanefnd Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar og í sjálfu sér höfum við ekkert fallið frá þeim hugmyndum sem þá voru uppi eða áformum okkar um vísindaveiðar á stórhvelum, þ.e. langreyði og sandreyði.
Hins vegar hefur ekki verið tekin frekari ákvörðun um þetta mál. Við erum núna að fara af stað með atvinnuveiðar á langreyði og ég held að það væri skynsamlegt hjá okkur að doka aðeins við og sjá hvort við getum aflað þeirra upplýsinga sem við teljum nauðsynlegar á grundvelli þeirrar sýnatöku sem fram fer á þessum stórhvelum. Þetta er hlutur sem við þurfum að fara yfir á næstu mánuðum með vísindamönnum okkar, hvort við getum fengið nægjanlegar upplýsingar með þeim hætti. Það er ljóst mál að vísindaveiðarnar á stórhvelunum eru mun umfangsmeiri og dýrari en vísindaveiðarnar á hrefnunni og þess vegna finnst mér eðlilegt — við viljum auðvitað forgangsraða í vísindarannsóknum okkar — að við skoðum það einfaldlega í því samhengi hvort við fáum það miklar upplýsingar með vísindalegri eftirfylgni á stórhvelaveiðunum. Ég veit að ekkert er því til fyrirstöðu að reyna að afla þeirra gagna sem menn vilja í tengslum við þessar atvinnuveiðar en auðvitað eru þetta ekki sams konar veiðar. Þetta er bara hlutur sem ég held að við þurfum að fara yfir.
Ég verð svo bara að játa það, virðulegur forseti, að ég get ekki svarað því hvar þau áform sem hv. þingmaður nefndi um gervitunglamerkingarnar eru stödd. Það er hlutur sem ég þarf einfaldlega að kynna mér betur. Flugtalningarnar eru áformaðar á næsta ári og ég er ekki í nokkrum vafa um að þær ásamt þeim rannsóknum sem fram munu fara með vísindaveiðunum og atvinnuveiðunum eiga eftir að gefa okkur heilmiklar upplýsingar sem eiga eftir að geta gagnast okkur, ekki bara vegna hvalastofnanna heldur ekki síður vegna samhengisins (Forseti hringir.) í lífríki hafsins.