133. löggjafarþing — 34. fundur,  23. nóv. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[12:33]
Hlusta

Frsm. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Frasaflaumur hv. þingmanns hefur að sjálfsögðu engin áhrif. Þetta sýnir fyrst og fremst að hv. þingmaður er afskaplega svekktur yfir því að stjórnarandstaðan skuli koma sameinuð í þessa umræðu.

Það þarf ekkert að rifja upp fyrir hv. þingmanni hvernig umræðan hefur verið undanfarin ár. Við höfum margbent á þá hluti sem betur mega fara. Stefna okkar flokka verður ekki vandamál, hún liggur fyrir, hún er skýr. Hv. þingmaður þarf því, frú forseti, ekki að hafa neinar áhyggjur. Ég held að hv. þingmaður ætti frekar að reyna örlítið að fækka í frasaflaumnum og reyna að fara örlítið í málefnalega umræðu. Það væri að minnsta kosti tilbreyting í því.