fjárlög 2007.
Hæstv. forseti. Það er alveg rétt að stjórnarandstöðuflokkarnir hafa verið á sínum forsendum í stjórnarandstöðu undanfarin ár. Þeir hafa ekki þurft á því að halda að búa til eitthvert skuggaráðuneyti í þingsölum. Það hefur hins vegar ekki staðið á samþykki Framsóknarflokksins við öllu því sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur viljað gera á undanförnum árum. Þar hefur ekki verið erfitt að ná saman. Einn maður hefur spriklað öðruvísi í þingsalnum á undanförnum árum, allan tímann, hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson. Aðrir hafa það ekki verið. Hinir hafa rétt upp hendurnar með öllu.
Flokkurinn er orðinn svo heillum horfinn að honum dettur ekki einu sinni í hug að nefna það sem hann hefur gert í gegnum tíðina, að hann ætli að ganga óbundinn til næstu kosninga. Nei, nei. Hann gengur með hálsbandið til kosninganna. (Gripið fram í: Hann er líka orðinn 90 ára.) Flokkurinn er reyndar að verða 90 ára og það er svona eins og með mannsævina. Hún er yfirleitt ekki öllu lengri.