133. löggjafarþing — 34. fundur,  23. nóv. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[18:01]
Hlusta

Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem kom fram hjá hv. þingmanni að það eru mjög margir liðir í ríkisútgjöldunum sem ekki eru á áætlun, bæði of og van. En hv. þingmaður fer með himinskautum í ruglinu þegar hún segir að það valdi þenslu að skilja eftir 20 milljörðum meira en umframeyðslan var. (Gripið fram í.) Það var 20 milljörðum meira eftir inni en keyrt var út af. Hv. þingmaður virðist bara alls ekki hafa lesið þetta. Eða heldur hv. þingmaður að 20 milljarða inneign hjá ríkisstofnunum hafi valdið þenslu í efnahagslífinu?

Nei, nú gengur alveg fram af mér af ruglinu, og hef ég heyrt ýmislegt bull áður, að það sé ástæðan fyrir því að ríkið hefur ekki getað valdið því, eins og Seðlabankinn segir, að stjórna efnahagsmálum vegna þess 20 milljörðum minna var eytt af fjárveitingunum, það eru 20 milljarðar umfram. Þar fara menn algjörlega villir vegar.

Ég spyr hv. þingmann aftur: Undir hvað vildi stjórnarandstaðan taka hjá Seðlabankanum? Hvað átti að skera niður í ríkisútgjöldunum? Átti að standa vörð um það og passa upp á, eins og Seðlabankinn hefur sagt, að kaupmátturinn yxi ekki svona mikið? Það var gagnrýnin frá Seðlabankanum. Tekur stjórnarandstaðan undir það og hvar átti að skera niður? Átti að skera niður heilbrigðismálin? Átti að skera niður menntamálin, félagsmálin, samgöngumálin o.s.frv.?

Í fullri vinsemd, hv. þingmaður, segðu mér hvað átti ríkisstjórnin að gera? Þú hefur ekki minnst á það einu einasta orði enn þá. Það var eytt 20 milljörðum minna en fjárlögin voru, ekki meira. Því miður, þú fórst með algjörlega rangt mál. (Forseti hringir.)