133. löggjafarþing — 34. fundur,  23. nóv. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[20:14]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fyrst ein örstutt leiðrétting. Hv. þm. Bjarni Benediktsson talaði um skuldir Íslendinga, skuldir íslensku þjóðarinnar og taldi þær vera litlar á heimsvísu. Við erum hins vegar skuldugasta þjóð í heiminum. Skuldirnar skiptast þannig og hafa skipast á þann veg að stórlega hefur dregið úr skuldum ríkissjóðs. Skuldir sveitarfélaganna hafa stóraukist hins vegar og skuldir fyrirtækja og heimila hafa stóraukist að sama skapi.

En ég vildi spyrja hv. þingmann út í ummæli hans um að afnema áminningarskyldu hjá ríkinu. Hann vill ná upp böndum á ríkisreksturinn. Heyrði ég rétt að eitt þeirra ráða sem hann vill grípa til er að geta rekið fólk skýringalaust? Það felur það í sér að afnema áminningarréttinn.