133. löggjafarþing — 34. fundur,  23. nóv. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[20:26]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég kalla alla góða vætti mér til hjálpar og liðsinnis í því að koma í veg fyrir að þessi hv. þingmaður verði nokkurn tíma fjármálaráðherra. Ef reikningskúnst hans er slík að hann geti haldið því fram að tillögur sem við höfum sýnt fram á að kosti 7,4 milljarða, kosti eigi að síður 13 milljarða, þá brestur mig allt skyn. Og guð forði okkur frá slíkum hæstv. fjármálaráðherra.

Frú forseti. Til marks um vitleysuna hjá þessari ríkisstjórn þá nefni ég það að fréttatímarnir hafa verið fullir af því hvernig þessu liði hefur tekist að koma séreignarlífeyrissparnaði fyrir með þeim hætti að ríkisstjórnin fer bókstaflega ránshendi um hann. Tekur hann allan upp, ginnir fólk til þess að leggja fyrir samkvæmt kerfi sem í ljós kemur að er svo lekt að nánast allt sem það sparar er tekið.

Ætlar þessi hv. þingmaður að halda því fram að það sé kerfi sem hægt er að verja? Nei, það gerir hann ekki, hann er of skynsamur til þess. En ætlar hann þá að svara því hvort þessu kerfi verði (Forseti hringir.) breytt?