fjárlög 2007.
Frú forseti. Við erum í 2. umr. um fjárlögin 2007 og rétt aðeins í byrjun vil ég nefna að ég hef tekið eftir því að meiri hlutinn hefur gert ýmsar jákvæðar breytingartillögur við sjálft frumvarpið og fagna ég þar sérstaklega auknum framlögum til íþróttamála og æskulýðsmála í samræmi við þær ábendingar sem ég og fleiri hafa komið með á síðustu vikum. Ég verð samt að benda á eitt atriði sem virðist hreinlega hafa fallið út og minna á það sérstaklega þar sem ég sé að hv. formaður fjárlaganefndar er staddur hér, stuðning við Æskulýðsmiðstöð KFUM í Vatnaskógi. Framlag til hennar hefur fallið algerlega niður, það var ekki í fjárlagafrumvarpinu og það kemur ekki fram í breytingartillögunum en ég vonast til að það verði tekið upp milli 2. og 3. umr.
Veiðimálastofnun hefur undanfarin ár orðið fyrir mikilli tekjuskerðingu, m.a. vegna Fiskræktarsjóðs og minni styrkja frá Landsvirkjun þar sem þeir hafa dregið saman í að styrkja rannsóknarverkefni í ám og vötnum og því ber að fagna ákvörðun fjárlaganefndar um aukið rekstrarframlag til Veiðimálastofnunar.
Ég tek líka eftir að það er áætlað aukið fé til Vinnumálastofnunar og þá fyrst og fremst vegna laga um starfsmannaleigur og vegna fjölgunar umsókna útlendinga um atvinnuleyfi. Við í félagsmálanefnd vöruðum við því á sínum tíma að aukin verkefni væru sett á Vinnumálastofnun án þess að fé fylgdi. Það var talið óþarft eftir ábendingum frá fjármálaráðuneytinu en nú hefur verið úr því bætt.
Varðandi málefni fatlaðra ber að fagna breytingartillögu sem er liður 700, ýmis verkefni, þar sem eru lagðar til 60 millj. kr. til að koma til móts við kostnað sveitarfélaga við að bjóða fötluðum börnum svokallaða lengda viðveru. Það er þó eitt í þessu, þetta er tímabundið og það þarf að koma í veg fyrir það í framtíðinni að ríki og sveitarfélög séu ávallt að takast á um þessi verkefni, þau þurfa að koma sér saman um hvor aðilinn eigi að sinna því.
Þá er lofinu, herra forseti, lokið í bili og ég ætla að bregða mér aðeins yfir í utanríkismál.
Það er liður 215, varðandi rekstur fyrrum varnarsvæðis við Keflavíkurflugvöll þar sem er gerð tillaga um 280 millj. kr. tímabundið framlag við yfirumsjón fyrrum varnarsvæðis. Í umræðum um utanríkismál fyrir viku lagði ég fram nokkrar spurningar til hæstv. utanríkisráðherra vegna varnarmála. Í svari hæstv. ráðherra kom m.a. fram, með leyfi forseta:
„Síðan var spurning frá hv. þm. Valdimar L. Friðrikssyni í sambandi við ratsjárnar. Það eru viðræður fram undan bæði við Bandaríkjamenn og NATO um þetta hlutverk og kostnaðarhlutdeildina. Ratsjárstofnun og ratsjárstöðvarnar eru fjórar og við höfum lagt áherslu á að þær munu allar starfa til framtíðar. …
Það er ljóst að það kostar hundruð milljóna á ári og gæti jafnvel verið milljarður, að reka þessar stöðvar til framtíðar.“
Ég get ekki séð, herra forseti, að gert sé ráð fyrir því í breytingartillögunum með allt að milljarðs kr. kostnaði við rekstur ratsjárstöðva á Keflavíkurflugvelli í þessum lið, 215. Af hverju það er veit ég ekki nema hér sé einungis um vanþekkingu hæstv. utanríkisráðherra að ræða, að þetta geti kostað hundruð milljóna, jafnvel allt upp í milljarð. Það ber að varast og má jafnvel leiða líkur að því að þarna eigi eftir að koma töluverður kostnaður í bakið á ríkisvaldinu við rekstur varnarsvæða á Keflavíkurflugvelli.
Varðandi tekjutryggingu ellilífeyrisþega sem töluvert hefur verið rædd hér í dag kemur fram í breytingartillögunum, í lið 204, að lögð sé til 192 millj. kr. hækkun vegna 300 þús. kr. frítekjumarks. Þarna er vitnað í samkomulag sem var gert við eldri borgara en það ætti öllum að vera ljóst að það er vafamál hvort um samkomulag hafi verið að ræða eða ekki. Menn eru sífellt að deila um þetta milli ríkisvaldsins og eldri borgara og það verður að viðurkennast að þessar deilur eru með öllu ólíðandi, sú mikla togstreita sem ríkisstjórnin hefur skapað í samskiptum sínum við eldri borgara. Ég bendi jafnframt á þá tillögu sem hefur verið minnst á í dag sem öll stjórnarandstaðan lagði fram undir heitinu Framtíðarskipan lífeyrismála og gengur mun lengra en tillaga fjárlaganefndar gerir.
Næst langar mig til að ræða hér um Ekron-starfs- og endurhæfingarþjálfun. Það kemur fram í lið 07-999, ýmis framlög, að þar sé tillaga frá fjárlaganefnd um 4 millj. kr. styrk til þessarar starfsemi. Ég verð að viðurkenna að að kemur mér talsvert á óvart miðað við jákvæðni heilbrigðisráðherra er við tókumst á um þetta í fyrirspurnatíma 15. nóvember sl. Ekki síður kemur mér þessi lága fjárveiting á óvart þegar í ljós kemur hverjir hafa mælt með þessari starfsemi, t.d. hæstv. dómsmálaráðherra, umhverfisráðherra, félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra.
Í áðurnefndum fyrirspurnatíma kynnti ég fyrir þingheimi Ekron-starfsþjálfun og sé ekki ástæðu til að gera það hér aftur en hins vegar sé ég ástæðu til að fara sérstaklega yfir umsókn hennar í þeirri trú og von að menn sjái að sér er þeir átta sig á um hversu mikilvægt verkefni er að ræða. Í umsókn hennar segir varðandi starfsþjálfun og endurhæfingu, með leyfi forseta:
„Ekron er starfsþjálfun og endurhæfing fyrir einstaklinga sem eiga ekki greiðan aðgang út á hinn almenna vinnumarkað, svo sem vegna fíknar sinnar, örorku eða atvinnuleysis. Hugmyndafræðin gengur út á að virkja mannauð hvers og eins og áhersla lögð á gagnvirka aðlögun einstaklinganna við sitt félagslega umhverfi sem er forsenda þess að menn nái að þróa raunhæfa sjálfsmynd og sjálfsábyrgð, finna út hæfni sína og þróa tengsl við aðra og nýta samfélagslegar bjargir. Umsóknarferlið verður á þá leið að læknir, félagsráðgjafi, sálfræðingur, áfengisráðgjafar, afbrotafræðingar og fleiri fagaðilar óska skriflega eftir starfsþjálfun fyrir viðkomandi einstakling.
Við inntöku í Ekron-starfsþjálfun mun fagaðili taka viðtal við viðkomandi einstakling, og þarfir og staða hans metin. Einnig verður haldinn fjölskyldufundur þar sem við teljum það mjög mikilvægan lið í bata að fjölskyldan sé þátttakandi í lífi einstaklingsins. Í framhaldi af því og í samvinnu við einstaklinginn er sett upp meðferðaráætlun og markmið. Verkefnið er rannsóknartengt frá upphafi með svokölluðum ASEBA-matslistum sem mæla í fyrsta lagi vanda einstaklingsins, bera kennsl á einkennamunstur, nota frásögn og upplýsingar um leikni og þátttöku í ýmsum athöfnum og meta færni og aðlögun.
Boðið verður upp á áhugasviðspróf sem gert verður af félags- og námsráðgjafa og mat á starfsáhuga og starfshæfni. Veitt verður ráðgjöf við náms- og starfsval út frá eigin áhugasviði, færni og gildismati til að auka líkur á að það starf sem valið er sé við hæfi einstaklingsins. Starfsþjálfun hefst kl. 9 og er til kl. 16 alla virka daga. Einstaklingurinn mun þannig búa heima hjá sér en sækja starfsþjálfunina eins og hverja aðra vinnu. Hver einstaklingur mun sækja vinnu á hinum almenna vinnumarkaði undir eftirliti og handleiðslu hópstjóra. Í upphafi er gert ráð fyrir um 2 klukkustundum á dag og verður aukið í samræmi við getu og markmið hvers og eins þar til viðkomandi einstaklingur verður fær um að vinna fullan vinnudag.“
Herra forseti. Ekron-starfsþjálfun og endurhæfing snýst um að aðstoða öryrkja við að fara af örorku út á vinnumarkaðinn. Um tekjur segir í umsókn Ekrons, með leyfi forseta:
„Áætlaður kostnaður vegna örorku einstaklings sem fer á örorku um 32 ára aldur er á bilinu 100–150 milljónir og er þá ótalinn kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu og þau gjöld sem viðkomandi einstaklingur hefði annars greitt til ríkisins, lífeyrissjóða og fleira. Áætlanir Ekron-starfsþjálfunar gera ráð fyrir að 24 einstaklingar séu í starfsendurhæfingu á hverjum tíma. Markmiðið er að ná 75% árangri og að starfsþjálfunin verði frá tveimur mánuðum og að hámarki 18 mánuðum. Miðað við ofangreindar forsendur, sbr. útreikning á örorkubótum, má gera ráð fyrir að beinn ávinningur af starfsendurhæfingunni verði 186–392 milljónir króna eða 279–588 milljónir króna ef um 75% árangur er að ræða.“
Herra forseti. Til þessa starfs var sótt um styrk að upphæð 72 millj. en nefndin sá einungis ástæðu til að verða við 4 millj. Ég tel rétt að menn horfi ögn lengra þegar um er að ræða starfsemi sem gengur út á það að hjálpa einstaklingum, öryrkjum, fyrrverandi vímuefnaneytendum til að hjálpa sér sjálfir í stað þess að vera alfarið á kostnað ríkisins.
Mig langar að síðustu að ræða eilítið um nám fyrir geðfatlaða, samstarf Geðhjálpar, Fjölmenntar og ríkisins. Í Morgunblaðinu í gær segir í grein að samstarfsverkefni Fjölmenntar um starfsendurhæfingu fyrir geðfatlaða sé í uppnámi og verði jafnvel sjálfhætt um áramótin fáist ekki næg fjárveiting til verkefnisins. Það er verið að tala um fjárveitingu upp á 12 millj. sem vantar upp á þá fjárveitingu sem fyrir er til að hægt sé að halda þessu námi gangandi. Það er hvergi hægt að finna það í breytingartillögum meiri hlutans. Geðhjálp boðaði af þessu tilefni til baráttufundar í gær og var þar samþykkt ályktun sem ég ætla að leyfa mér að lesa, herra forseti:
„Ályktun baráttufundar Geðhjálpar um áframhaldandi menntunar- og starfsendurhæfingarúrræði fyrir geðfatlaða og heilaskaðaða:
Fundurinn skorar á menntamálaráðherra og ríkisstjórn Íslands að tryggja nú þegar nauðsynlegt fjármagn til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar svo að hægt verði að bjóða upp á fullt nám nú á vorönn.
Það er afstaða fundarins að óásættanlegt sé að farið verði af stað með skert náms- og starfsendurhæfingartilboð til handa geðsjúkum og heilasköðuðum eftir næstkomandi áramót í ljósi þess að nauðsynleg fjárframlög hafa ekki og munu ekki berast, skv. yfirlýsingu menntamálaráðherra þar um.
Það er skýlaus krafa að hið opinbera tryggi lög- og stjórnarskrárbundinn rétt fólks með geðsjúkdóma og heilaskaða til menntunar og fræðslu við hæfi. Að óbreyttu er ríkisstjórnin að ganga gegn eigin samþykktum sbr. samþykkt ríkisstjórnarinnar í desember 2004.
Það er óþolandi og óviðunandi að eina sérhæfða náms- og stuðningsúrræðið í landinu fyrir ofangreinda hópa skuli sífellt mæta fordómum af hálfu stjórnvalda. Þess er jafnframt krafist að stjórnvöld gangi hið fyrsta frá framtíðarskuldbindingum með þjónustusamningi við Fjölmennt þar sem tryggt verði nám og stuðningur við alla hópa fatlaðra og þá einnig geðfatlaða. Fullri ábyrgð á framhaldinu er lýst á hendur ríkisstjórn Íslands.“
Herra forseti. Enn og aftur eru komnar upp deilur milli ríkisstjórnarinnar og ákveðinna minnihlutahópa í þjóðfélaginu. Þetta nám á vegum Fjölmenntar gefur geðfötluðum og heilabiluðum og aðstandendum þeirra mun betra líf auk þess sem slíkt nám hjálpar þessum einstaklingum til að mennta sig betur og jafnvel að komast út á vinnumarkaðinn. Ég tel rétt að fjárlaganefnd endurskoði afstöðu sína í þessu máli á milli 2. og 3. umr.
Að lokum í þessu máli og því til stuðnings ætla ég að grípa niður í frétt sem kom í Morgunblaðinu þann 10. október sl. þar sem segir m.a., með leyfi forseta:
„Dagurinn í dag markar mikil tímamót í hagsmunabaráttu geðfatlaðra.“ — Og hér er afskaplega falleg mynd af hæstv. félagsmálaráðherra og fleirum, og í þessari grein segir m.a.:
„Í samtali við Morgunblaðið sagðist félagsmálaráðherra leggja mikla áherslu á menntunarmál geðfatlaðra og hyggst hann sökum þessa beita sér fyrir því að félagsmálaráðuneytið, í samvinnu við menntamála- og fjármálaráðuneyti, finni leið til þess að tryggja Fjölmennt áframhaldandi rekstrarfé svo það geti eftir sem áður sinnt þjónustunni við notendur Fjölmenntar.“
Herra forseti. Það er ekki að sjá að hæstv. félagsmálaráðherra ætli að standa við þessi orð sín, a.m.k. hefur hann þá ekki náð samvinnu við hv. fjárlaganefnd ef litið er til þeirrar staðreyndar að það vantar 12 millj. kr. upp á að Fjölmennt geti sinnt þessu starfi sem ég hef gert svo vel grein fyrir.